Enn er langt í að einhver vendipunktur verði í stríðinu í Úkraínu þó að ýmislegt hafi gengið vel hjá Úkraínumönnum undanfarið. Þetta segir Oleksandr Syrsky, yfirmaður úkraínska hersins.
Hernum hefur tekist að stöðva sókn Rússa um mestalla víglínuna, auk þess sem Úkraínumenn hafa gert fjölda drónaárása á rússneskt landsvæði, meðal annars á olíuhreinsistöðvar. Síðast í morgun voru gerðar árásir á hreinsistöðvar og hafnarmannvirki við Azov-haf í Suður-Rússlandi.
Syrsky sagði í færslu á samfélagsmiðlum að á fyrri helmingi ársins hefði dregið úr sókn Rússa og árásum þeirra fækkað um helming. Sóknin væri nú álíka mikil á báða bóga. „Á sama tíma má ekki vanmeta óvininn. Við erum enn langt frá því að ná vendipunkti í stríðinu,“ sagði hann.
Auknar árásir á óbreytta borgara
Samkvæmt greiningu AFP-fréttastofunnar á gögnum frá Stríðsrannsóknastofnuninni (Institute for the Study of War) endurheimtu Úkraínumenn 403 ferkílómetra svæði í apríl og maí, sem bendir til þess að sókn Rússa fari þverrandi.
Syrky bendir þó á að Rússar hafi aukið árásir á svæði óbreyttra borgara. Úkraínska utanríkisráðuneytið segir að frá byrjun júlí hafi Rússar drepið 93 og sært yfir 500. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sagði í gær að þessar árásir væru nú það eina sem skilaði árangri fyrir Rússa, þar sem Úkraínumenn hefðu styrkt stöðu sína bæði í loftárásum og á vígvellinum.