Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra, hefur sent yfirlýsingu til fjölmiðils á frönsku eyjunni Nýju Kaledóníu á Kyrrahafi.
Fjölmiðillinn Les Nouvelles Calédoniennes fjallaði fyrr á árinu um Edition-málið á Íslandi og rakti að Mancel-fjölskyldan hefði átt í harkalegum erfðadeilum við ættingja sína fyrir dómstólum í Nýju Kaledóníu og Nýja Sjálandi.
Ming Mancel var handtekin á Edition-hótelinu í júní 2025. Hótelstarfsmaður kom að óhugnanlegum aðstæðum í herbergi fjölskyldunnar, þar sem bæði eiginmaður hennar og dóttir voru látin.
Adeline Mauduech-Pancrazi, lögfræðingur Ming Mancel í Nýju Kaledóníu, hefur sent fjölmiðlinum yfirlýsingu fyrir hennar hönd vegna umfjöllunarinnar. Þar segir að sakamálið á Íslandi og erfðadeilur fjölskyldunnar séu tvö óskyld mál.
Í farbannsúrskurði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að í skýrslutöku hafi Ming Mancel greint frá því að ástæður þess að fjölskyldan hefði viljað deyja væru meðal annars erfið veikindi eiginmanns hennar og deilur um erfðamál sem hefðu tekið mjög á þau öll.
Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Mancel á Íslandi, hafði ekki heyrt af yfirlýsingunni þegar fréttastofa leitaði til hans. Hann segir hana þó engu breyta um framburð hennar um atburðarásina.
Ming Mancel hafi með yfirlýsingunni viljað árétta að dómsmálum um erfðadeilur fjölskyldunnar og málinu hér á Íslandi yrði ekki blandað saman. Hún hafi ekki verið að tjá sig um ástæður þess að fjölskyldan vildi deyja. Aðalmeðferð yfir Ming Mancel hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. júní.