Yfir 70% af Englandi eru nú formlega þurrkasvæði samkvæmt yfirlýsingu umhverfisráðuneytis Bretlands. Þar búa um 45 milljónir manna. Alls staðar á landinu reynir á vatnsuppsprettur og það á ekki eftir að lagast fyrr en það fer að rigna verulega.
Óvenju þurrt hefur verið í Bretlandi í sumar eins og víða annars staðar. Júlímánuður hefur aldrei verið þurrari í Englandi og Wales samkvæmt bresku veðurstofunni. Í Englandi var úrkoman aðeins 10% af meðalúrkomu.
Fjórar hitabylgjur hafa riðið yfir Bretlandseyjar á þessu sumri með þeim afleiðingum að fjöldi hitameta hefur fallið. Þeirri fimmtu er spáð síðar í vikunni. Skortur á rigningu, sem Bretland hefur ekki verið þekkt fyrir í gegnum árin, hefur valdið því að tún bænda sem yfirleitt eru iðagræn á þessum árstíma eru skraufþurr og gul.
Um helmingur Englands hefur verið yfirlýst þurrkasvæði frá því í lok júlí. Í dag bættust fleiri við og er aðeins nyrsti hluti Englands eftir. Þar er ástandið samt ekki talið eðlilegt. Breska umhverfisráðuneytið segir þurrkana hafa langvarandi áhrif á umhverfið. Almenningur er hvattur til að spara vatnsnotkun eins og mögulegt er til að meira sé aflögu fyrir bændur. Áhyggjur hafa aukist af uppskerubresti vegna þurrkanna.
Stjórnvöld hafa boðað aðgerðir til að bregðast við, meðal annars með því að koma upp níu vatnsuppsprettum til viðbótar, draga úr lekum í vatnsveitukerfinu og gera bændum það auðveldara að koma upp eigin uppsprettum á þeirra landi.