Yfir 2.400 er nú saknað í Nepal og Tíbet og tæplega 600 hafa fundist látnir eftir hamfaraflóðið sem féll við landamæri Nepal og Tíbets.
Fjöldi þeirra sem saknað er hækkaði snarlega þegar ljóst var að 933 starfsmanna vatnsaflsvirkjunar væri einnig saknað, auk ferðamanna og pílagríma. Alls er 1.924 saknað í Nepal, þar af 517 ferðamanna.
Samkvæmt kínverskum stjórnvöldum eru sjö látnir og 554 er saknað í Tíbet. Erfitt er að fá nákvæmar upplýsingar um ástandið á flóðasvæðunum í Tíbet. Erlendir fjölmiðlar hafa takmarkaðan aðgang að svæðinu og kínversk stjórnvöld greina frá upplýsingum um stöðu björgunaraðgerða.
Flóðahætta ógnaði björgunarfólki í dag svo gera þurfti hlé á björgunaraðgerðum um tíma en þeim var svo framhaldið. Björgunarfólk vinnur baki brotnu við björgunaraðgerðir beggja megin landamæranna.
Mikill fjöldi fólks hefur safnast saman við spítala í Katmandu, höfuðborg Nepals, þar sem fólkið leitar ástvina sinna og bíður milli vonar og ótta eftir fréttum af þeim sem saknað er.
Stjórnvöld í Kína hafa boðið Nepal aðstoð sína við neyðaraðgerðir.