Stuðningsmenn norska liðsins á Íslandi koma margir hverjir saman í kvöld og horfa á leik Norðmanna gegn Englandi, meðal annars á sportbarnum Ölver.
Þar var söngvarinn Eiríkur Hauksson staddur en óhætt er að segja að hann eigi sér stað í hjörtum beggja þjóða enda hefur hann keppt í Eurovision fyrir hönd bæði Noregs og Íslands.
Aðspurður segir Eiríkur síða hár norska framherjans Erling Haaland eflaust hafa sitt að segja um velgengni hans á mótinu.
Silje Beite Løken, stuðningsmaður norska liðsins, segist finna fyrir stuðningi Íslendinga.
„Mér finnst svo gaman að því fyrir 10 árum þá vorum við að kalla: „Áfram Ísland!“ í Noregi og núna vona ég að Íslendingar séu að segja: „Heia Norge!“ segir Silje.