Skólahald á að hefjast að nýju í Grindavík í næsta mánuði. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir vissar líkur á því að eldsumbrotum á svæðinu sé lokið.
„Það er þannig að það er kvika að safnast fyrir og meðan svo er þá er líklegast að þetta endi með eldgosi. Þetta gæti hætt áður og þá er þetta búið en ef við berum þetta saman við Kröfluelda þá voru þrjú gos 1980, tvö gos 1981 og svo liðu þrjú ár þangað til síðasta gosið kom.“
Hann segir langlíklegast að ef komi til eldgoss verði það á Sundhnúksgígaröðinni en að erfitt sé að segja til um nákvæma staðsetningu.
„Þó er nú líklegra að það sé miðjan eða jafnvel norðurhlutinn miðað við hvernig þetta hefur hegðað sér,“ segir Magnús Tumi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann í kvöldfréttum sjónvarps.
Ólíklegt að gos verði inni í Grindavík
Ekki er hægt að útiloka að það gjósi inni í Grindavík en þó hefur engin gossprunga náð inn í byggð síðan ísöld lauk.
„Þannig að það er ólíklegt en það getur gosið, við höfum fengið tvö lítil gos sem hafa sent hraun nær bænum og varnargarðarnir björguðu hluta bæjarins. Þannig að það er ekki hægt að gefa sér neitt en í stórum dráttum held ég að ég verði að segja að langtímahorfurnar eru góðar,“ segir Magnús Tumi.
Fólk verður að vera á vaktinni
Magnús segir það í höndum Grindvíkinga að ákveða hvort ráðlagt sé að taka upp skólahald að nýju í ágúst. Reynslan sýni að nægur tími sé til að yfirgefa bæinn ef það gjósi aftur.
„Þetta er viss áhætta sem er tekin en ég held miðað við reynsluna, við höfum alla þessa varnargarða og þeir hafa haldið fram að þessu og það er langlíklegast að þeir muni gera það áfram,“ segir Magnús Tumi.
Hann segir einnig að fólk verði að vera tilbúið að yfirgefa svæðið og vera á vaktinni.
„Þá held ég að við verðum að taka því sem þeirra vilja og reyna að standa vaktina til þess að vara fólk við nægilega snemma til þess að það geti forðað sér,“ segir Magnús að lokum.