Samkvæmt útgönguspá kusu 55 prósent Svisslendinga gegn tillögunni en 45 með. Kosningunni lauk í hádeginu. Þjóðarflokkur Sviss, sem er hægri flokkur þar í landi, lagði tillöguna fram. Flokkurinn hefur lengi barist gegn komu innflytjenda til landsins.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu.
Íbúafjöldi í Sviss nemur nú 9,1 milljón en 27 prósent íbúa eru ekki svissneskir ríkisborgarar. Ef svo verður að tillagan verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu myndi það stofna samningi þjóðarinnar við Evrópusambandið um frjálst flæði fólks og vara yfir landamæri í hættu.
Sviss þyrfti þá að slíta samningnum sem myndi hafa töluverðar afleiðingar fyrir landið enda reiðir þjóðin sig að miklu leyti á útflutning og ferðamennsku. Þjóðarflokkur Sviss hélt því fram að sú leið að takmarka fólksfjölda myndi minnka álag á innviði og fasteignamarkað.
Fjöldi innflytjenda starfar í heilbrigðisgeiranum, ferðamannabransanum og á hjúkrunarheimilum í Sviss. Ýmsir rekstraraðilar og aðrir hagsmunaaðilar voru því áhyggjufullir í aðdraganda kosninganna eftir því sem fram kemur í frétt BBC.
Í Sviss er hægt að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu með því að safna að minnsta kosti 100 þúsund undirskriftum.