Nick Reiner hefur nú krafist þess að fá aðgang að vörslusjóði sem foreldrar hans höfðu stofnað í hans nafni. Krafan var lögð fram hjá dómstólum í Kaliforníu á mánudaginn, en þar segir:
„Nick elskaði foreldra sína og hann er miður sín yfir andláti þeirra. En staðreyndirnar um hvað kom eða kom ekki fyrir þau skipta ekki máli í þessu vörslusjóðsmáli.“
Nick hefur verið ákærður fyrir að bana foreldrum sínum, kvikmyndaleikstjóranum Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Singer Reiner, en þau fundust látin á heimili sínu í desember.
Samkvæmt kröfunni höfðu foreldrar Nick stofnað lítinn vörslusjóð fyrir börnin sín á meðan þau voru enn á lífi, þar með talið fyrir Nick sjálfan en nú þarf hann peningana til að borga verjendum sínum. Nick hefði átt að fá hluta sjóðsins til umráða þegar hann varð þrítugur og restina við 35 ára aldur. Nick er í dag 32 ára gamall en hann hefur lýst yfir sakleysi í málinu.
Samkvæmt kröfunni hefur Nick ekkert fengið úr sjóðnum þrátt fyrir að greiðslur hafi átt að hefjast fyrir tveimur árum. Telur hann að sjóðurinn hafi að geyma rúmlega 1,5 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega 189 milljónir króna.
Samkvæmt kröfunni hefur Nick undanfarið leitast eftir því að fá umráð sjóðsins en núverandi umráðamaður hefur bara komið með mismunandi afsakanir, þar með taldar vangaveltur um hvort að Nick sé almennt hæfur til að fara með fjárráð sjóðsins. Samkvæmt kröfunni ætlar Nick að nota sjóðinn til að greiða fyrir málsvörn sína og eins til að geta keypt sér nauðsynjar í fangelsinu þar sem hann dvelur nú í varðhaldi.
„Greiðslurnar eru ekki matskenndar og sjóðurinn heimilar ekki fjárvörsluaðila að binda úthlutanir skilyrðum á grundvelli huglægs mats á því hvernig Nick ætlar að verja peningunum.“
Eins er tekið fram að Nick hefur ekki verið sviptur fjárræði og því standist það ekki skoðun að meina honum aðgengi að fjármununum með vísan til getu hans til að fara með fjárráð.