Þetta er samkvæmt heimildum New York Post, sem hefur um árabil verið uppáhaldsfjölmiðill Trumps. Hvíta húsið hefur ekki svarað fyrirspurn Fox News um málið.
António Guterres, núverandi framkvæmdastjóri SÞ, lætur af störfum í lok þessa árs og er leitin að arftaka hans þegar hafin. Hver sem tekur við starfinu þarf blessun allra fimmtán meðlima öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal fimm ríkjanna sem eru með fast sæti þar, og í kjölfarið þarf hann að sigra kosningu á allsherjarþinginu.
Kosningarnar eiga að fara fram seinna á þessu ári, áður en Guterres lætur af störfum.
Í frétt NY Post segir óljóst hvort Infantino vilji starfið yfir höfuð eða hvort Trump hafi rætt það við hann. Trump er þó sagður ósáttur með þá sjö frambjóðendur sem þykja líklegastir til að fá starfið.
Án þess að staðfesta fregnir NY Post sagði Paolo Zampolli, sérstakur erindreki Trumps, að enginn annar en hann gæti fengið svo „snilldarlega hugmynd“. Hann sagði að Infantino myndi standa sig frábærlega í starfi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Infantino og Trump hafa verið vinir um nokkuð skeið. Sá fyrrnefndi var viðstaddur innsetningarathöfn Trumps í fyrra og hefur á undanförnum árum verið tíður gestur í Mar a Lago, sveitaklúbbi og heimili Trumps í Flórída.
Síðan hann varð aftur forseti í fyrra hefur Trump dregið verulega úr fjárveitingum Bandaríkjanna til Sameinuðu þjóðanna, dregið Bandaríkin úr mörgum af nefndum þess og stofnunum eins og WHO, UNESCO og mannréttindaráðinu og hefur hann einnig stofnað svokallað friðarráð, sem á að vera sams konar stofnun og Sameinuðu þjóðirnar.
Ekki óumdeildur
Infantino stendur frammi fyrir annarri kosningu. Í mars á næsta ári verður allsherjarþing FIFA haldið og verður þá ákveðið hvort hann eigi að sitja fjórða tímabilið sem forseti sambandsins, sem hann hefur lýst yfir að hann vilji gera.
Forsetinn er ekki óumdeildur í starfi sínu og hefur verið gagnrýndur af mikilvægum mönnum innan FIFA. Nú síðast af Javier Tebas, forseta spænsku deildarinnar, sem vill að Infantino segi af sér.
Sjá einnig: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“
Ákvörðun hans að fella úr gildi rautt spjald hins bandaríska Folarin Balogun, að kröfu Trumps, var einnig ekki vinsæl. Flestir innan FIFA eru þó sagðir tilbúnir til að kjósa Infantino í embætti aftur.