Í yfirlýsingunni sem þau skrifuðu undir í dag segir að ríkjunum þremur, Írlandi, Skotlandi og Wales sé nú í fyrsta sinn öllum stýrt af fólki sem hefur barist fyrir sjálfstæði.
„Fyrir fólk sem fylgist með víðsvegar um eyjunar, fyrir þá sem horfa á frá umheiminum, þá gæti þetta ekki verið skýrar merki um það að tími Westminster er á enda.“
Þá segir þar einnig að þrjú eigi að vinna saman með Englandi en sem jafningjar.
Westminster’s time is coming to an end.
— John Swinney (@JohnSwinney) September 14, 2026
We believe there is a better way. Our nations working together as equals, sharing ideas and expertise, building relationships based on mutual respect and common interests.
Today marks a further step in building our cooperation. 🏴🏴🇮🇪 pic.twitter.com/pd8EWzQGED
Í yfirlýsingunni eru fjögur atriði nefnd sérstaklega. Það er að ráðamennirnir hafni efnahagsstjórn yfirvalda í Lundúnum, sem hafi ekki virkað fyrir alla. Leiðtogarnir segjast ætla að vinna saman til að auka jöfnuð í ríkjum þeirra.
Þá segjast þær ætla að bæta orkuöflun í ríkjunum og draga þannig úr kostnaði fyrir heimili og fyrirtæki.
„Orkuauður þjóða okkar á að þjóna fólki okkar,“ segir í yfirlýsingunni.
Úrganga Bretlands úr Evrópusambandinu er einnig nefnd. Segir að Brexit hafi skaðað hagkerfi ríkjanna og takmarkað tækifæri fólksins sem býr í þessum löndum. Leiðtogarnir segjast sammála um að ríkin eigi að ganga í Evrópusambandið og heita því að bæta samskiptin við Brussel.
Þá segir að engin ríkisstjórn í Westminester eigi rétt á því að takmarka lýðræði í umræddra ríkja eða taka ákvarðanaréttinn af umræddum þjóðum. Þær eigi að leggja línurnar að eigin framtíð.
Því kalla leiðtogarnir eftir því að ríkisstjórn Bretlands hefji strax undirbúning að stjórnarskrárbreytingum vegna aðskilnaðar Norður-Írlands, Skotlands og Wales frá Stóra-Bretlandi.