Viljayfirlýsing um stofnun rannsóknaseturs um íslenska hestinn við Háskóla Íslands á Hólum í Hjaltadal var undirrituð á Landsmóti hestamanna í gær.
Viljayfirlýsinguna undirrituðu Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti Háskóla Íslands á Hólum, og Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar.
„Íslenski hesturinn er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, atvinnulífi, ferðaþjónustu, íþróttum, sögu og menningu. Hann er líka viðfangsefni sem kallar á vandaðar rannsóknir, þverfaglega nálgun og öfluga miðlun þekkingar,” sagði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við tilefnið
„Það er vel við hæfi að Háskóli Íslands stofni rannsóknarsetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal í góðu samstarfi við ríki og sveitarfélag. Þannig verður sérstaða svæðisins að uppsprettu nýrrar þekkingar fyrir samfélagið allt og út í heim.“
Rannsóknasetrið verður hluti af Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands sem samkvæmt stofnsamningi nýrrar háskólasamstæðu Háskóla Íslands mun flytjast til HÍ á Hólum, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.