Ökumenn 65 ára og eldri þurfa að endurnýja ökuréttindin á eins til fimm ára fresti - og árlega eftir áttrætt. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins lagði í fyrravor fram frumvarp um að á þessu verði slakað. Frumvarpið náði ekki fram að ganga á síðasta þingi og var lagt aftur fram í haust.
„Þetta er algjört réttlætismál fyrir eldri ökumenn því að Ísland er komið mjög aftarlega. Öll nágrannalönd okkar fara eiginlega bara eftir hæfni og þú þarft bara að endurnýja alltaf á 15 ára fresti. Miðað við lyktir þessa frumvarps þá fer fólk úr því að þurfa að endurnýja 18 sinnum niður í 4 skipti á 20 ára tímabili.“
Frumvarpið hefur nú verið afgreitt úr umhverfis- og samgöngunefnd. Nefndin í heild, þingmenn allra flokka, leggur sameiginlega til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu í takti við umsagnir sem bárust.
Bæði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu tóku í sínum umsögnum undir að slaka ætti á gildandi reglum en lögðu til að það yrði ekki fyrr en um nírætt sem fólk þyrfti að endurnýja ökuréttindi árlega. Samkvæmt gildandi lögum er það við áttrætt en í upphaflega frumvarpinu var lagt til að eftir nírætt yrði að endurnýja á tveggja ára fresti.
Nanna Margrét er bjartsýn á að frumvarpið verði að lögum í vor.
„Ég var mjög föst á því að skerðingar hæfust ekki fyrr en við 70 ára aldur og þá náðum við samstöðu og tókum tillit til flestra umsagnaraðila, eins og sýslumanns. Þá var breið samstaða og allir nefndarmenn samþykktu að málið héldi áfram og það eykur verulega líkurnar á að málið komist til afgreiðslu á Alþingi og gæti orðið að lögum bara fyrir sumarfrí. Þannig að ég er mjög bjartsýn.“