Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að stofnaður verði starfshópur til að meta áhrif aðildar að Evrópusambandinu á hagsmuni Reykjavíkurborgar. Í tillögu þeirra segir að gera skuli ráð fyrir að starfshópurinn skili stuttri og hnitmiðaðri samantekt eigi síðar en 14. ágúst, tæpum tveimur vikum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Tillagan verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar á morgun, 16. júní.
Í henni segir að opinber umræða um mögulega aðild að Evrópusambandinu hafi sögulega einblínt á áhrif á atvinnuvegi á borð við sjávarútveg og landbúnað. Þar af leiðandi skorti hlutlæg gögn og heildstæða samantekt á áhrifum aðildar og upptöku evru á efnahag og fjárfestingargetu stærstu sveitarfélaga landsins.
Starfshópnum yrði gefið það hlutverk að vinna greiningu á helstu áhrifum mögulegrar aðildar Íslands að ESB og upptöku evru á fjárhag, fjárfestingargetu og innviðauppbyggingu Reykjavíkur.
„Tilgangur tillögunnar er að tryggja að íbúar í Reykjavík hafi aðgang að skýrum, faglega unnum staðreyndum um hagsmuni sveitarfélagsins áður en gengið er til kosninga. Í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um starfs- og stýrihópa er lagt til að skipaður verði sérstakur starfshópur sem hýsir dýrmæta innri þekkingu starfsmanna borgarinnar af fjármálasviði ásamt hlutlausri þekkingu fræðasamfélagsins,“ segir í tillögunni.
Þá er ekki lagt til að ráðist verði í „viðamikla eða tímafreka úttekt“ heldur afmarkaða sem aðeins nái til fjármagnskostnaðar og lánakjara, aðgengis að alþjóðlegum innviðasjóðum og húsnæðismarkaði og húsnæðisfélaga.
„Borgarstjóra er falið að vinna erindisbréf sem lagt verður fram í borgarráði en í hópnum skulu m.a. sitja sérfræðingar af fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar auk þess sem gera skal ráð fyrir aðkomu sérfræðinga á sviði Evrópumála og hagfræði, s.s. frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og/eða hugveitunni Evrópustraumum.“