Vilhjálmur og Katrín kynna glænýjan fjölskyldumeðlim
📅 2026-05-01 19:11:00
👁️ 4 lesið
Vilhjálmur og Katrín kynna glænýjan fjölskyldumeðlim
Vilhjálmur og KatrínOtto er með krúttlegri meðlimum konungsfjölskyldunnar
Mynd: Instagram
Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans, Katrín, hafa kynnt nýjan fjölskyldumeðlim, hundinn Otto, í færslu á samfélagsmiðlum í dag, 1. maí.
Hjónin, sem eiga börnin Georg, Karlottu og Lúðvík, deildu mynd af hundinum og skrifuðu: „Velkominn í fjölskylduna Otto! 1 árs í dag.“
OttoFallegur er hann,
Mynd: Instagram
Otto bætist í hóp annarra gæludýra fjölskyldunnar. Árið 2020 fengu þau hundinn Orlu, svartan cocker spaniel. Þá hefur Vilhjálmur áður greint frá því að eitt af síður vinsælum heimilisverkum sé að þrífa búrið hjá naggrís fjölskyldunnar, sem börnin gleymi oft.
Konungsfjölskyldan hefur lengi haft sérstakt dálæti á dýrum. Elísabet II heitin var til að mynda þekkt fyrir ást sína á corgi-hundum og átti yfir 30 slíka hunda á valdatíma sínum.
Samkvæmt heimildum gekk hún daglega með hundana sína og hófst þessi hefð þegar hún fékk sinn fyrsta corgi, Susan, í afmælisgjöf árið 1944. Síðar ræktaði hún einnig svokallaða „dorgi“-hunda, sem eru blendingar corgi og dachshund.
#fjölskyldumeðlim
#glænýjan
#katrín
#kynna
#vilhjálmur