Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, viðraði í dag hugmyndina um að Kanada fái aukaaðild að Evrópusambandinu, fyrst allra ríkja. Þetta gerði hún á fundi í þingi Evrópusambandsins þar sem Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, er meðal gesta.
„Ég vil vinna með þér að því að opna dyrnar fyrir því að Kanada verði fyrsta ríkið með aukaaðild að Evrópusambandinu,“ sagði von der Leyen.
Kanadastjórn hefur undanfarið lagt áherslu á að treysta samskiptin við Evrópuríki eftir að samskiptin við Bandaríkin hörðnuðu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur lagt tolla á Kanada og reynt að ná fram viðskiptasamningi ríkjanna þar sem Kanadamenn segja Bandaríkjamenn hafa gengið of langt í kröfum sínum.
Von der Leyen ræddi einnig viðsjárverða stöðu í Evrópu vegna stríðsins í Úkraínu og fjölþátta hernaðar Rússa gegn evrópskum ríkjum. Hún sagði koma til greina að koma á fót öryggisráði Evrópu með aðild Evrópusambandsins og ríkja á borð við Bretland og Úkraínu.
Hún sagði að lengi hefði verið rætt um að koma á formlegu samráði þjóðarleiðtoga í öryggismálum álfunnar. Hún sagði að það væri jafnvel enn brýnna nú en áður í ljósi stöðunnar og viðsjárverðra tíma.