Samhjálp fær engin svör frá borginni um framtíð umdeildrar kaffistofu samtakanna sem að öllu óbreyttu endar á götunni eftir tvær vikur. Framkvæmdastjóri segir að þá verði matargjafir undir berum himni.
Allt var til reiðu fyrir opnun kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi fyrir tæpum mánuði þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi byggingarleyfi hennar úr gildi á þeim grundvelli að deiliskipulag hefði ekki legið fyrir áður en byggingarleyfið var samþykkt.
Hafa kvartað til umboðsmanns Alþingis
Hluti gestanna er heimilislaus, aðrir hafa einfaldlega ekki efni á að kaupa sér mat og þar átti að vera opið alla daga vikunnar, allt árið. Íbúar í nágrenninu hafa ítrekað mótmælt staðsetningunni og segja slíka starfsemi ekki eiga heima í íbúðahverfi.
Samhjálp telur brotið gegn bæði jafnræði og meðalhófi, hefur sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis og óskar eftir skjótri meðferð vegna brýnna hagsmuna.
„Hluti af þeirri niðurstöðu sem nefndin kemst að byggir á félagslegri og fjárhagslegri stöðu þeirra sem koma hingað og leita þjónustu,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar.
Segir skipulagsvaldið vængstýft
Hún telur ákvörðunina vera fordæmisgefandi og að hún gæti haft veruleg og margvísleg áhrif. „Ef þessi úrskurður stendur eins og hann er, þá er búið að vængstýfa skipulagsvald – ekki bara Reykjavíkurborgar – heldur allra annarra sveitarfélaga á landinu.“
Ekki möguleiki að hætta að gefa fólki mat
Undanfarna mánuði hefur kaffistofan verið í bráðabirgðahúsnæði í Fíladelfíukirkjunni. Þar þiggja um 150 manns matargjafir á degi hverjum – en óvíst er hvernig og hvar þær verða gefnar á næstunni. „Næstu mánaðamót, eftir hálfan mánuð, ættum við að vera farin út úr Fíladelfíu,“ segir Guðrún Ágústa.
Hvað gerist þá? „Þá ættum við að vera á götunni. Ég horfi ekki á það sem möguleika að hætta að gefa fólki mat.“
Hafið þið einhverja möguleika á að gefa fólki mat ef þið hafið ekki þak yfir höfuðið? „Úti á götu. Við myndum bara gefa fólki úti á götu.“
Hafa ekkert heyrt um framhaldið
Húsnæðismál kaffistofunnar voru til umræðu á fundi borgarráðs í dag. Þar ítrekaði meirihlutinn þá afstöðu sína að finna ætti henni annan stað. Fari svo, gæti það orðið Samhjálp dýrkeypt, en samtökin hafa kostað talsverðu til við húsnæðið á Grensásvegi.
„Það þýðir að við erum með kostnað upp á 60 milljónir,“ segir Guðrún Ágústa.
Síðan byggingarleyfið var fellt úr gildi – hafið þið fengið einhver skilaboð frá borginni um hvernig þið eigið að halda áfram? „Nei.“