Vindmylluvirkjun á Garpdalsfjalli hefði veruleg neikvæð áhrif á landslag og ásýnd í nágrenninu, einkum fyrir þá sem eru á ferð um Saurbæ eða Þröskulda og þá sem stunda útivist til fjalla í nágrenni vistorkuversins. Möguleikar til að draga úr þessum áhrifum eru takmarkaðir.
Þetta segir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í áliti sínu um umhverfismat vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Álitið var birt fyrir helgi.
EM orka vill reisa vindorkuvirkjun í Garpsdal í Reykhólahreppi og hélt kynningarfundi í vetur.
HMS telur einnig að endurgerð vegaslóða um bratta fjallshlíð hafi talsverð neikvæð áhrif og valdi sýnilegum breytingum á svæðinu.
Vindorkuverið er líklegt til að valda því að einhverjir fuglar drepist en ekki verður mikið um það. Ólíklegt er að það myndi hafa áhrif á stofnstærð fugla í nágrenninu. Þó telur HMS að gæta verði fyllstu varúðar vegna hafarna. Það er vegna þess að mörg áform eru uppi um að byggja vindorkuver á helsta útbreiðslusvæði þeirra og gætu samlegðaráhrif vindorkuveranna reynst hafarnastofninum mjög hættuleg.
Því telur HMS að möguleg áhrif á haförn ættu að vega þungt. Vindorkuverið í Garpsdal er þó í tiltölulega mikilli hæð og fátt sem virðist lokka haferni þangað þó að staðfestar upplýsingar séu um ferðir þeirra á þessum slóðum, segir í álitinu.
HMS segir að ef leyfi verður veitt fyrir framkvæmdinni þurfi að huga að nokkrum þáttum.
Meðal annars ætti að forðast að standa í framkvæmdum á láglendi í Garpsdal á varptíma fugla og setja skýr skilyrði um vöktun og viðbragðsáætlun vegna hafarnar, fálka og rjúpu. Einnig ætti að setja skilyrði um endurheimt votlendis og gera mat á áhrifum virkjunar á vatnshlot. Huga þarf vel að flutningi vindmylluhluta og merkja menningarminjar áður en framkvæmdir hefjast. Auk þess vill HMS kanna hvort hægt sé að hafa slökkt á flugöryggisljósum vindmyllanna þegar engar flugvélar eru nálægar. Að lokum segir HMS æskilegt að skilyrði verði sett um að niðurrif vindmyllanna verði tryggt enda áætlaður líftími þeirra um 25 til 30 ár.