Verjast fregna af aðalfundi Sósíalistaflokksins
Formannskosningar fóru fram í Sósíalistaflokki Íslands um helgina en aðalfundurinn var ekki auglýstur opinberlega. Stjórn Sósíalistaflokksins upplýsti ekki um staðsetningu fundarins nema með skilaboðum til þeirra félaga sem þegar voru búnir að skrá sig á fundinn.
Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands fór fram um helgina en fundurinn var hvergi auglýstur opinberlega eftir því sem Heimildin kemst næst. Upplýsingar um nákvæma staðsetningu fundarins voru ekki veittar flokksmönnum nema eftir að þeir voru búnir að skrá sig á fundinn.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar var kosið um formann framkvæmdastjórnar flokksins en núverandi formaður, Sæþór Benjamín Randalsson, fékk mótframboð.
Stjórnarmenn og áhrifafólk í Sósíalistaflokknum vörðust fregna af fundinum þegar Heimildin óskaði eftir upplýsingum en boðað var að fréttatilkynning væri væntanleg.
Ný framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins var kjörin á aðalfundi í maí í fyrra en stofnandi flokksins, Gunnar Smári Egilsson, missti þá sæti sitt í framkvæmdastjórn. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi flokksins, sagði af sér sem pólitískur leiðtogi flokksins og endaði á að bjóða fram undir merkjum Vinstrisins í sveitarstjórnarkosningum í ár.
Deilur stóðu einnig um félagið Vorstjörnuna, fjölmiðilinn Samstöðina og húsnæði flokksins við Bolholt 6, en mikið af opinberum …