Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður vegfarendur um að sýna aðgát og tillitssemi vegna vegaframkvæmda í kvöld og nótt en framkvæmdir standa yfir á 560 metra kafla við Sæbraut til klukkan sex í fyrramálið.
Greint er frá þessu á Facebook-síðu lögreglunnar.
Sömuleiðis verða framkvæmdir á um 860 metra kafla á Suðurlandsvegi milli Norðlingavaðs og gatnamóta við Nesjavallaleið. Veginum verður lokað í báðar áttir og umferð beint um Hafravatnsveg. Einnig verða lokanir við Heiðmerkurveg, Hólmsá og Hólmsheiðarveg.