Bandaríkjaforseti segir að skipaumferð hefjist að nýju um Hormússund í dag. Gögn frá greiningarfyrirtækjum benda þó til þess að umferð um sundið sé enn mjög takmörkuð.
„Skip eru farin að sigla úr Hormússundi, mörg þeirra hlaðin olíu. Þau sigla eftir suðurleiðinni sem er örugg, trygg og óspillt,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í dag.
Í gær bárust fregnir af því að samkomulag hafi náðst um áframhaldandi vopnahlé í átökunum í Mið-Austurlöndum. Bandarísk og írönsk stjórnvöld stefna á að undirrita samkomulag um áframhaldandi vopnahlé í Sviss á föstudag, þegar fundi G7-ríkjanna lýkur. Því er ætlað að binda enda á átök á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon.
Þvert á yfirlýsingar Bandaríkjaforseta benda gögn þó til þess að umferð um Hormússund sé enn takmörkuð. Samkvæmt upplýsingum frá greiningafyrirtækinu Kpler hafa einungis örfá flutningaskip farið um sundið í dag með kveikt á staðsetningarbúnaði sínum, til að mynda maltneskt skip sem flutti fljótandi jarðgas frá Katar til Indlands.
Yfir 500 skip hafa sent frá sér staðsetningarmerki á Persaflóa síðasta sólarhringinn en mörg þeirra eru enn föst vestan við sundið vegna átakanna.
Fyrir stríðið ferðuðust að jafnaði 120 skip um Hormússund á dag en á liðinni viku hafa aðeins um sex flutningaskip siglt um sundið á dag að meðaltali.
Í drögum að samkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans er gert ráð fyrir að Hormússund, sem er ein mikilvægasta siglingaleið heims fyrir olíu- og gasflutninga, verði opnað að fullu á næstu dögum.