Dýpkandi lægðardrag á Grænlandshafi dregur hægt vaxandi suðaustanátt yfir landið. Því má búast við strekkingi við suður- og vesturströndina seinnipartinn. Smá væta þar í fyrstu og svo bætir í úrkomuna þegar líður á daginn.
Á Norður- og Austurlandi verður skýjað með köflum og ef til vill sólarglennur. Það verður fremur milt veður að deginum með hita að 13 stigum norðan heiða.
Á morgun spáir stífri suðaustanátt með rigningu en áfram verður þurrt á Norður- og Austurlandi.
Á sunnudag má gera ráð fyrir hægari austlægri átt og lítilli úrkomu. Víða næturfrost. Útlit er fyrir rólegt og úrkomulítið veður fram eftir næstu viku.