Andris Sprūds, varnarmálaráðherra Lettlands, tilkynnti afsögn sína á blaðamannafundi í gærkvöld. Hann segist með afsögninni vilja koma í veg fyrir að herinn dragist inn í pólitískar deilur. Lettneska ríkisútvarpið LSM greinir frá.
Undanfarið hafa nokkrir drónar hrapað til jarðar í aðskildum atvikum í Lettlandi og herinn verið gagnrýndur fyrir að bregðast ekki nægilega fljótt við og skjóta þá niður. Evika Siliņa forsætisráðherra fór fram á að Sprūds segði af sér. Hann hefði glatað trausti flokks hennar og þjóðarinnar.
Afsögn Sprūds gæti haft áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og flokkur hans, Framfaraflokkurinn, ætlar að tilkynna í dag hvort flokkurinn verður áfram í ríkisstjórn. Sprūds hefur verið varnarmálaráðherra frá 2023.
Þrír flokkar mynda ríkisstjórn Lettlands, flokkur forsætisráðherrans Ný samstaða, Framfaraflokkur varnarmálaráðherrans og flokkur grænna og bænda.
LSM greinir frá því að Sprūds hafi áður verið gagnrýndur vegna drónamála. Úkraínskur dróni sem beint var að rússneskum innviðum hrapaði til jarðar í Krāslava-héraði í Lettlandi 25. mars. Þá hrapaði rússneskur Shahed-dróni í sveitarfélaginu Gaigalava 7. september 2023.