Rússneskum dróna var skotið á farþegalest sem var á leið frá Kyiv til Varsjár í Póllandi í morgun.
Lestin var Úkraínumegin við landamærin en aðeins tveimur kílómetrum frá landamærunum að Póllandi. Pólska lestarfyrirtækið PKP segir að 206 farþegar hafi verið um borð. Engan sakaði. Annar rússneskur dróni sprakk nærri einni af landamærastöðvunum.
Úkraínsku járnbrautirnar vöruðu við því í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum að kerfisbundin árás á lestarkerfið stæði yfir um allt landið og starfsfólkið væri á viðbragðsstöðu. Þegar er farið að beina ákveðnum lestum annað.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir Rússa hafa gert árásir á borgaralega innviði í vesturhluta Úkraínu. Tveir voru drepnir í árásum Rússa á landið í nótt og í morgun.