Einn heppinn áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum.
Það tók þó dágóða stund fyrir vinningshafann að átta sig á fréttunum því þegar haft var samband með gleðifréttirnar var hann nefnilega alveg sannfærður um að einhver væri að atast í honum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá.
„Ég hélt bara að þetta væri eitthvað grín,“ sagði hann hlæjandi og bætti við að hann hefði enga hugmynd haft um vinninginn þar sem hann er með miða í áskrift. „Ég var ekki búinn að fá tölvupóst eins og venjulega þegar ég vinn, þannig að ég var alveg viss um að þetta gæti ekki verið rétt.“
Eiginkonan álíka tortryggin
Skýringin er sú að þegar um stærri vinninga er að ræða eru ekki sendar tilkynningar í tölvupósti heldur haft beint samband við vinningshafa persónulega til að færa þeim fréttirnar, samkvæmt Íslenskri getspá.
Þegar loks hafði tekist að sannfæra þann heppna um að hér væri ekkert grín á ferðinni, var hans fyrsta verk að hringja í eiginkonu sína og segja henni tíðindin. Þá tók ekki betra við.
„Hún trúði mér ekkert frekar en ég trúði þessu fyrst sjálfur,“ segir hann og hlær. „Hún var alveg viss um að ég væri að reyna að vera fyndinn.“
Eins og áður sagði kemur vinningurinn á besta tíma fyrir hjónin sem hafa verið að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Að þeirra sögn mun þessi óvænti vinningur létta mikið undir með þeim og opna fleiri áhugaverð tækifæri.