Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að gangi spár eftir berist hingað til lands hlýtt loft úr austri og norðaustri og að síðdegis á föstudaginn gæti hitinn náð 20 stigum í Reykjavík og annars staðar á suðvestuhorninu og á Vesturlandi.
„Þetta virðist vera nokkuð pottþétt á föstudaginn,“ segir hann.
Hann segir að veðrið sé að ná sér á strik eftir úrkomumikla byrjun á mánuðinum.
Enn er hæpið að ætla að spá fyrir um hvort rigni á þjóðhátíðardaginn.