Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til - „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“ - DV

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til - „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“ - DV
Útlendingastofnun segir ekkert hæft í því að stofnunin sé með verklag um að samþykkja aðeins hælisumsóknir frá öldruðum eða sjúkum, en því hafði fyrrverandi starfsmaður stofnunarinnar, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, haldið fram á samfélagsmiðlum, en Hlédís er nú í framboði fyrir Miðflokkinn í borginni.

Fullyrðing Hlédísar féll í athugasemd við færslu frá Arnari Arinbjarnasyni, en Arnar hefur undanfarið látið á sér kveða fyrir Samtök skattgreiðenda sem hafa miklar áhyggjur af velferðarútgjöldum til útlendinga.

Arnar bað Hlédísi að meta hvort eftirfarandi, sem hann skrifaði í athugasemd á Facebook, væri fjarstæðukennt eða ekki:

„Nú er staðan sú hins vegar að ef útlendingur hefur fengið dvalarleyfi hér á landi, má hann sækja um fjölskyldusameiningu fyrir m.a. foreldra sína sem gætu verið orðnir 67 ára. Þetta fólk kemur þá til landsins og fær alls um 600 þúsund krónur á mánuði í ellilífeyri og getur svo flutt aftur til síns heima (í annað og hagstæðara verðlag). Það er ekki einu sinni gengið úr skugga um hvort þetta séu foreldrar viðkomandi og óvíst hvort hann geti jafnvel átt hundruði foreldra. Ennfremur er enginn sem veit hvenær þetta fólk deyr, greiðslurnar halda áfram þrátt fyrir það.“

Hlédís svaraði og sagði að líklega væri eitthvað til í þessu hjá Arnari. Það hafi komið Hlédísi á óvart þegar hún hóf störf hjá Útlendingastofnun að henni var gert að synja öllum umsóknum frá Venesúela nema frá umsækjendum sem náð höfðu 57 ára aldri eða sem voru sjúklingar.

„Ætli það sé ekki eitthvað til í þessu. Það kunna að vera einhverjar takmarkanir á dvöl í heimaríki (sem flúið er frá, því margir hafa tvö vegabréf). En því er ekkert fylgt eftir nema kannski ef það berst tilkynning og starfsmaður á plani er í stuði.

Þessi fjölskyldusameining eldriborgara er ákveðið tromp og það kom mér verulega á óvart þegar ég byrjaði hjá ÚTL. Við áttum þá að synja öllum frá Venesúela nema þeim sem höfðu náð 67 ára aldri. Eldri borgarar og sjúklingar voru eina fólkið sem átti séns. Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana.“

Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, segir ekkert verklag hjá stofnuninni kveða á um að hafna beri öllum umsóknum nema frá öldruðum eða sjúkum. Útlendingastofnun afgreiði bæði umsóknir um alþjóðlega vernd sem og umsóknir um dvalarleyfi, en aldur og heilsufar eru þættir sem litið er til þegar flóttamaður óskar eftir vernd á Íslandi, en dugi einir og sér hvorki til veitingar né synjunar:

„Þegar metið er hvort umsækjandi um vernd sé flóttamaður, þ.e. hvort hann eigi á hættu ofsóknir eða sé í lífshættu í heimaríki, er sérhver umsókn metin með hliðsjón af einstaklingsbundnum þáttum og ítarlegri rannsókn á almennum aðstæðum í heimalandi viðkomandi. Aldur og heilsufar eru þættir sem litið er til, ekki síst við forskoðun eða flokkun umsókna, en duga einir og sér hvorki til veitingar né synjunar.

Umsóknir um dvalarleyfi eru alfarið metnar út frá því hvort umsækjandi uppfylli skilyrði laga um útlendinga fyrir því leyfi sem hann sækir um. Allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa til dæmis að geta gert grein fyrir því hverjir þeir eru, leggja fram sakavottorð og uppfylla skilyrði um framfærslu. Samkvæmt lögum um útlendinga geta aðeins makar, börn yngri en 18 ára og foreldrar 67 ára eða eldri átt rétt á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Til staðfestingar á fjölskyldutengslum þarf umsækjandi um dvalarleyfi fyrir foreldri 67 ára eða eldri að skila lögformlega staðfestu fæðingarvottorði einstaklingsins sem hann sækir um fjölskyldusameiningu við. Á vottorðinu þurfa að koma fram upplýsingar um foreldrana.“

Samkvæmt svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur frá árinu 2024 er ekki algengt að foreldrar fái dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Algengast er að slík leyfi séu veitt til maka og barna. Af svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur sem birtist nú á dögunum má eins sjá að mjög fáir foreldrar frá aðstandendaleyfi á ári hverju. Einkum eru þetta aðilar frá Filippseyjum, Víetnam og Bandaríkjunum.

Hvað varðar fullyrðingar um ellilífeyri er rétt að taka fram að samkvæmt lögum um almannatryggingar eiga þeir aðeins rétt á ellilífeyri sem hafa náð 67 ára aldri og verið tryggðir á Íslandi í að minnsta kosti þrjú almanaksár á aldrinum 16–67 ára. Full réttindi miðast við búsetu á Íslandi í minnst 40 ár. Sé um skemmri búsetu að ræða þá reiknast ellilífeyrir í hlutfalli við búsetutíma. Hægt er að fá félagslegan viðbótarstuðning sem er ætlaður þeim sem eiga takmörkuð ellilífeyrisréttindi hér á landi. Þessi stuðningur er veittur að hámarki til 12 mánaða í senn og sækja þarf um hann árlega, og aðeins þeir útlendingar sem hafa ótímabundið dvalarleyfi eða rétt til ótímabærrar dvalar á Íslandi eiga rétt á slíkum greiðslum. Þessi viðbótarstuðningur er tekjutengdur og eins er nauðsynlegt að hafa skráð lögheimili og varanlega búsetu á Íslandi. Greiðsluréttur viðbótargreiðslna fellur niður ef dvalið er erlendis lengur en í 90 daga á hverju 12 mánaða greiðslutímabili.

Tryggingastofnun ríkisins sér svo um að fylgjast með því að lífeyrisþegar sem eru búsettir erlendis séu sannarlega á lífi með því að óska reglulega eftir lífsvottorði og skattaframtali frá búsetulandi, en um þetta var fjallað í nýlegum úrskurði kærunefndar velferðarmála.

Sjá einnig: Fær ekki meiri ellilífeyri frá TR fyrr en hann sannar að hann sé á lífi

 

#útlendingastofnun #sveitarómagana #alþjóðlegu #verklagið #kannast

📰 Aðrar fréttir

13 drepnir í árásum Ísraelshers á Gaza
📅 25.04.2026 00:27:25 👁️ 0

13 drepnir í árásum Ísraelshers á Gaza

#ísraelshers#drepnir#árásum#gaza
Europe's Nato allies push back at reported US threat to Spain
📅 25.04.2026 00:10:51 👁️ 1

Europe's Nato allies push back at reported US threat to Spain

#reported#europe#allies#threat#spain
King's 'high stakes' visit with Trump will be toughest test yet of his reign
📅 24.04.2026 23:36:58 👁️ 0

King's 'high stakes' visit with Trump will be toughest test yet of his reign

#toughest#stakes#visit#trump#reign
Everest flood warning neglected for years, Nepal officials tell BBC
📅 24.04.2026 23:28:09 👁️ 0

Everest flood warning neglected for years, Nepal officials tell BBC

#neglected#officials#everest#warning#flood
'Killing in prison is not difficult' - the rise in attacks behind bars
📅 24.04.2026 23:00:03 👁️ 0

'Killing in prison is not difficult' - the rise in attacks behind bars

#difficult#killing#attacks#prison#behind
Breivik sækir um reynslulausn eitt skiptið enn
📅 24.04.2026 22:35:28 👁️ 1

Breivik sækir um reynslulausn eitt skiptið enn

#reynslulausn#breivik#skiptið#sækir#eitt
Trump's envoys Witkoff and Kushner to fly to Pakistan for Iran talks
📅 24.04.2026 22:02:50 👁️ 0

Trump's envoys Witkoff and Kushner to fly to Pakistan for Iran talks

#pakistan#witkoff#kushner#envoys#trump
I'm A Celebrity crowns 'jungle legend' after eventful all-star series
📅 24.04.2026 21:36:57 👁️ 0

I'm A Celebrity crowns 'jungle legend' after eventful all-star series

#celebrity#eventful#crowns#jungle#legend
Netanjahú greindist með krabba­mein - Vísir
📅 24.04.2026 21:32:07 👁️ 0

Netanjahú greindist með krabba­mein - Vísir

#krabbamein#netanjahú#greindist#vísir
China car giant BYD says it can thrive without access to US market
📅 24.04.2026 21:25:16 👁️ 1

China car giant BYD says it can thrive without access to US market

#without#thrive#access#market#china
„Þetta er svona íslensk aðferð, framkvæma fyrst og spyrja svo“
📅 24.04.2026 21:20:44 👁️ 0

„Þetta er svona íslensk aðferð, framkvæma fyrst og spyrja svo“

#framkvæma#íslensk#aðferð#spyrja#þetta
Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit - Vísir
📅 24.04.2026 21:15:33 👁️ 0

Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit - Vísir

#sakborninga#fjölgar#húsleit#ráðist#vísir
Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar
📅 24.04.2026 20:30:17 👁️ 0

Stjórnarandstaðan sakaði meirihlutann um blekkingar

#stjórnarandstaðan#meirihlutann#blekkingar#sakaði
Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí - Tryggingafélag varar við læknastofu - DV
📅 24.04.2026 20:30:11 👁️ 0

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí - Tryggingafélag varar við læknastofu - DV

#tryggingafélag#íslendingar#læknastofu#milljónir#sviknir
Mikill áhugi nemenda á kórsöng á Laugarvatni og á Selfossi
📅 24.04.2026 20:25:19 👁️ 0

Mikill áhugi nemenda á kórsöng á Laugarvatni og á Selfossi

#laugarvatni#selfossi#nemenda#kórsöng#mikill
Tólf lögreglumál vegna áreitni í garð starfsfólks
📅 24.04.2026 20:01:03 👁️ 0

Tólf lögreglumál vegna áreitni í garð starfsfólks

#lögreglumál#starfsfólks#áreitni#vegna#tólf
Nýtt myndband frá Aðalheiði: Ræðir ghosting og stefnumótaöpp
📅 24.04.2026 20:00:35 👁️ 0

Nýtt myndband frá Aðalheiði: Ræðir ghosting og stefnumótaöpp

#stefnumótaöpp#aðalheiði#myndband#ghosting#ræðir
„Við­reisn er í al­gjörri lykil­stöðu“ - Vísir
📅 24.04.2026 19:56:58 👁️ 0

„Við­reisn er í al­gjörri lykil­stöðu“ - Vísir

#lykilstöðu#viðreisn#algjörri#vísir
Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri
📅 24.04.2026 19:43:20 👁️ 0

Svíar hugfangnir af elgum í leiðangri

#hugfangnir#leiðangri#svíar#elgum
Oddvitaumræður í Hveragerði
📅 24.04.2026 19:37:58 👁️ 0

Oddvitaumræður í Hveragerði

#oddvitaumræður#hveragerði
Sendi­menn Trump fara á fund utan­ríkis­ráð­herra Írans á morgun - Vísir
📅 24.04.2026 19:17:49 👁️ 0

Sendi­menn Trump fara á fund utan­ríkis­ráð­herra Írans á morgun - Vísir

#utanríkisráðherra#sendimenn#morgun#trump#írans
70-year-old man revived after drowning incident at beach in Costa Adeje
📅 24.04.2026 19:11:00 👁️ 0

70-year-old man revived after drowning incident at beach in Costa Adeje

#drowning#incident#revived#after#beach
Segist vera réttmætur eigandi Mosa og vera hafður fyrir rangri sök - DV
📅 24.04.2026 18:56:56 👁️ 0

Segist vera réttmætur eigandi Mosa og vera hafður fyrir rangri sök - DV

#réttmætur#eigandi#segist#hafður#rangri
The unexpected benefits of upgrading your Golf Bag
📅 24.04.2026 18:55:00 👁️ 0

The unexpected benefits of upgrading your Golf Bag

#unexpected#upgrading#benefits#your#golf
Sjálfstæðisflokkur tekur fram úr Samfylkingu í borginni
📅 24.04.2026 18:49:07 👁️ 0

Sjálfstæðisflokkur tekur fram úr Samfylkingu í borginni

#sjálfstæðisflokkur#samfylkingu#borginni#tekur#fram
Sonur Reiner sendir frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu
📅 24.04.2026 18:31:50 👁️ 0

Sonur Reiner sendir frá sér tilfinningaþrungna yfirlýsingu

#tilfinningaþrungna#yfirlýsingu#reiner#sendir#sonur
Bilið á milli turnanna breikkar - Vísir
📅 24.04.2026 18:31:45 👁️ 0

Bilið á milli turnanna breikkar - Vísir

#turnanna#breikkar#bilið#milli#vísir
Hluthafaspjallið | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske
📅 24.04.2026 18:31:06 👁️ 0

Hluthafaspjallið | Viðtal við Jón Þorstein, forstjóra Beru – og ruglið í danska Berlingske

#hluthafaspjallið#berlingske#forstjóra#þorstein#viðtal
Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land - Vísir
📅 24.04.2026 18:30:09 👁️ 0

Vestur­lönd tali opin­skátt um fyrirætlað stríð við Rúss­land - Vísir

#vesturlönd#fyrirætlað#opinskátt#rússland#stríð
Channel 5 newsreader withdraws claims against Dan Walker
📅 24.04.2026 18:17:05 👁️ 0

Channel 5 newsreader withdraws claims against Dan Walker

#newsreader#withdraws#channel#against#claims
Oddvitaumræður í Borgarbyggð
📅 24.04.2026 18:10:03 👁️ 0

Oddvitaumræður í Borgarbyggð

#oddvitaumræður#borgarbyggð
Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum - Vísir
📅 24.04.2026 18:05:44 👁️ 0

Vendingar í borginni og tón­leikar í heima­húsum - Vísir

#heimahúsum#vendingar#tónleikar#borginni#vísir
Director Rob Reiner's son Jake Reiner bares soul on how he found out his parents were dead
📅 24.04.2026 18:02:54 👁️ 0

Director Rob Reiner's son Jake Reiner bares soul on how he found out his parents were dead

#director#parents#reiner#bares#found
AENA take action to ease passport control queues for British arrivals
📅 24.04.2026 17:51:00 👁️ 0

AENA take action to ease passport control queues for British arrivals

#passport#arrivals#control#british#action
Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður
📅 24.04.2026 17:48:23 👁️ 0

Sakamálarannsókn á hendur seðlabankastjóra felld niður

#sakamálarannsókn#seðlabankastjóra#hendur#felld#niður
Evrópusambandið rannsakar meint brot Mandelsons meðan hann var viðskiptastjóri
📅 24.04.2026 17:39:00 👁️ 0

Evrópusambandið rannsakar meint brot Mandelsons meðan hann var viðskiptastjóri

#evrópusambandið#viðskiptastjóri#mandelsons#rannsakar#meint
Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar - DV
📅 24.04.2026 17:30:53 👁️ 0

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar - DV

#fjárhagsaðstoð#útlendingar#reykjavík#hverjum#þremur
Fimm bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut - Vísir
📅 24.04.2026 17:28:01 👁️ 0

Fimm bíla á­rekstur á Reykja­nes­braut - Vísir

#reykjanesbraut#árekstur#vísir#fimm#bíla
Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf. - DV
📅 24.04.2026 17:01:55 👁️ 0

Eva Margrét tekur við taumunum hjá ESJA Legal ehf. - DV

#taumunum#margrét#tekur#legal#esja
Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut
📅 24.04.2026 17:01:40 👁️ 0

Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut

#reykjanesbraut#árekstur#fimm#bíla
Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut
📅 24.04.2026 17:01:40 👁️ 0

Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut

#reykjanesbraut#nokkurra#árekstur#bíla
Nútíma óligarkinn – Kristján Arason, Centra ráðgjöf og skatta undanskotin
📅 24.04.2026 16:57:35 👁️ 0

Nútíma óligarkinn – Kristján Arason, Centra ráðgjöf og skatta undanskotin

#undanskotin#óligarkinn#kristján#ráðgjöf#nútíma
Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu - Vísir
📅 24.04.2026 16:55:31 👁️ 1

Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu - Vísir

#listaverkið#náttúruna#svæðinu#öryggi#vernda
Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans
📅 24.04.2026 16:47:29 👁️ 0

Tveir helstu samningamenn Bandaríkjanna á leið til fundar við utanríkisráðherra Írans

#utanríkisráðherra#bandaríkjanna#samningamenn#helstu#fundar
Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar
📅 24.04.2026 16:47:16 👁️ 0

Orrustuþotur höfðu afskipti af rússneskum herþotum innan lofthelginnar

#lofthelginnar#orrustuþotur#rússneskum#afskipti#herþotum
Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB - DV
📅 24.04.2026 16:30:53 👁️ 1

Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB - DV

#samninga#felast#dagur#segir#hættu
Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin
📅 24.04.2026 16:20:33 👁️ 0

Hegseth segir Írana hafa sögulegt tækifæri til samkomulags við Bandaríkin

#samkomulags#bandaríkin#sögulegt#tækifæri#hegseth
Israeli police investigate after officers 'cut Palestinian flag' from skullcap
📅 24.04.2026 16:20:10 👁️ 1

Israeli police investigate after officers 'cut Palestinian flag' from skullcap

#investigate#palestinian#officers#skullcap#israeli
Mandelson under formal investigation by EU's anti-fraud office
📅 24.04.2026 16:18:19 👁️ 1

Mandelson under formal investigation by EU's anti-fraud office

#investigation#mandelson#formal#office#under
Sinueldur kviknaði við bensín­stöð - Vísir
📅 24.04.2026 16:13:48 👁️ 0

Sinueldur kviknaði við bensín­stöð - Vísir

#bensínstöð#sinueldur#kviknaði#vísir