Útlendingamálin – Ísland er í togi

Júlíus Valsson skrifar:
Samráðsgátt stjórnvalda var kyrrlátur staður í febrúar. Þar birti dómsmálaráðuneytið hinn 20. þess mánaðar drög að frumvarpi um verndarsamkomulag Evrópusambandsins, mál nr. S-49/2026, og gaf landsmönnum sjö daga til að segja álit sitt á því hvernig ábyrgð á umsóknum um alþjóðlega vernd skuli framvegis skipt milli ríkja álfunnar.
Fjórar umsagnir bárust. Fjórar!
Við hin vorum upptekin við annað og verður hver að eiga það við sjálfan sig.
Alþingi samþykkti frumvarpið 9. júní, þremur dögum áður en reglurnar komu til framkvæmda á öllu Schengen-svæðinu, og heitir það nú lög nr. 49/2026. Dagsetningin hafði verið ákveðin í Brussel tveimur árum fyrr.
Verklagið
Hælismál standa utan EES-samningsins og er rétt að halda því til haga. Skuldbindingarnar hvíla á Schengen-samningnum frá 1999 og Dyflinnarsamningnum frá 2001. EES-samningurinn kenndi okkur hins vegar verklagið. Samkvæmt honum má hafna nýrri gerð og kostar það, eftir 102. gr., að viðkomandi hluta samningsins kann að verða frestað. Á þá grein hefur Ísland aldrei látið reyna í rúma þrjá áratugi. Norðmenn tilkynntu árið 2011 að þeir hygðust hafna þriðju pósttilskipuninni og drógu það til baka tveimur árum síðar, að loknum kosningum.
Í Schengen-samningnum er sama hugsun færð í fastara form. Hafni Ísland nýrri gerð fellur samningurinn allur úr gildi samkvæmt 8. gr., nema samsetta nefndin ákveði annað innan níutíu daga, og Dyflinnarsamningurinn fer sömu leið. Ráðuneytið orðar það sjálft svo, í áformaskjali um annað Schengen-mál, að aðgerðaleysi „gæti þýtt upphaf úrsagnarferils Íslands úr samstarfinu“. Á sjómannamáli heitir þetta að vera í togi.
Það sem mælir með verklaginu
Rökin fyrir fyrirkomulaginu eru gild og ber að segja þau eins og þau eru. Dyflinnarreglurnar gera Íslandi kleift að senda umsækjendur aftur til þess ríkis sem þeir komu fyrst til. Lögreglan hefur aðgang að upplýsingakerfum sem ekkert smáríki kæmi sér upp á eigin spýtur, íslenskir embættismenn sitja fundina þar sem gerðirnar eru mótaðar og nýju reglurnar eru strangari en þær gömlu.
Allt er þetta rétt og þar liggur vandinn. Eftir aldarfjórðung í togi hefur okkar eigin vél ekki verið ræst, og því betur sem togið gagnast, þeim mun dýrara verður að sleppa tauginni. Réttur sem enginn hefur efni á að nýta er bara til skrauts.
Taugin stjórnar ferðinni
Skip í togi heldur stýri sínu og áhöfnin má standa í brúnni, en stefnunni ræður sá sem dregur. Hvaða gerðir teljast til Schengen-samstarfsins er tekið fram í aðfararorðum hverrar gerðar, og þau semur Evrópusambandið. Reglurnar um samstöðu aðildarríkjanna, þar sem ríki taka við umsækjendum hvert frá öðru eða greiða fyrir að komast hjá því, standa enn utan við það sem bindur Ísland. Þar ræður orðalag sem við eigum ekkert atkvæði um. Hljóðlátasta ofríkið er það þegar annar semur textann og hinn á um það að velja að skrifa undir eða fara.
Reikningurinn
Málsmeðferð og þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd kostaði ríkissjóð 4,1 milljarð króna árið 2021 og 14,7 milljarða árið 2024, samtals um 40 milljarða á fjórum árum. Í þeim tölum er ótalinn kostnaður vegna þeirra sem fengið hafa vernd, og dómsmálaráðuneytið mat heildarkostnað útlendingamála á 20 milljarða árið 2023 eitt. Umsóknum fjölgaði úr 875 árið 2021 í 4.518 ári síðar og voru 1.749 í fyrra. Í fjárlagafrumvarpi þessa árs voru málaflokknum ætlaðir 6,5 milljarðar. Þar er ekki talinn óbeinn kostnaður vegna félagslegrar aðstoðar, heilsugæslu og tannlækninga, lögfræðikostnaðar, túlkaþjónustu o.fl. Þar er um að ræða milljarða á milljarða ofan og enginn mannlegur máttur getur fengið þær upphæðir á hreint. Þessi kostnaður er vandlega falinn fyrir skattgreiðendum af wóke-liðnu.
Bæði vöxturinn og lækkunin verða að mestu rakin til ákvarðana sem teknar voru hér heima, og er það einmitt umhugsunarefnið, því að slíkum ákvörðunum fækkar með hverri taug sem bætist við.
Ný brottvísunarreglugerð
Sú næsta er þegar komin um borð. Um nýja brottvísunarreglugerð var samið í Brussel 1. júní og hún mun gilda beint í samstarfsríkjunum fjórum utan sambandsins. Drögin birtast eflaust fljótlega í samráðsgáttinni. Þá gefst færi á fimmtu umsögninni.