Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman til fundar klukkan tíu í dag. Eina málið á dagskrá er niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Þetta verður fyrsta formlega aðkoma þingsins að málinu eftir að meirihluti kjósenda hafnaði því um helgina að hefja á ný aðildarviðræður.
Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar og þingmaður Viðreisnar, sagðist í fréttum í gær ekki eiga von á því að nefndin ákveddi að afturkalla aðildarumsókn Íslands. Formenn og þingmenn stjórnarandstöðu hafa sagt að það ætti að vera næsta skref.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mætir á fundinn.