Uppsagnir í ráðhúsinu: Skrifstofa upplýsingafulltrúa lögð niður
Borgin tilkynnti starfsfólki í morgun að skrifstofa samskipta og viðburða yrði lögð niður. Upplýsingafulltrúum hefur verið sagt upp.
Nýr meirihluti hefur lagt niður skrifstofu samskipta og viðburða vegna hagræðingaraðgerða og skipulagsbreytinga. Hátt í tíu starfsmönnum að minnsta kosti hefur verið sagt upp hjá sviðinu, þó aðeins upplýsingafulltrúum samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar. Viðburðasviðið verður fært annað í umræddum skipulagsbreytingum.
Þá vekur athygli að borgin óskar ekki eftir vinnuframlagi þeirra sem hefur verið sagt upp frá og með næstu mánaðamótum.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar fengu starfsmenn póst í morgun þar sem óskað var eftir samtali við þá. Starfsfólkið fór þá eitt í einu á fund með Þorsteini Gunnarssyni borgarritara sem tilkynnti uppsagnirnar. Ekki er ljóst hversu mörgum var sagt upp en fjöldi upplýsingafulltrúa hjá borginni hefur oft verið pólitískt bitbein hjá kjörnum fulltrúum. Árið 2023 störfuðu átta upplýsingafulltrúar hjá upplýsingadeild Ráðhússins en aðrir níu sem skiptust á sjö svið borgarinnar, eða sautján í heildina. Fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Marta Guðjónsdóttir, lagði meðal annars fram þá tillögu árið 2023 að skrifstofa samskiptateymis yrði lögð …