Uppsagnir í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum Reykjavíkur eru gríðarlegt högg fyrir málaflokkinn og ekki hægt að sjá að boðaðar breytingar bæti þjónustu eða faglegt starf. Þetta segir í tilkynningu frá stjórnum Samfés, landssamtökum félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, og Fagfrí, landssamtökum um fagþróun frístundaheimila.
Samtökin fordæma það sem þau kalla „aðför borgarstjórnar Reykjavíkurborgar að faglegum grundvelli félagsmiðstöðva og frístundaheimila í borginni“.
Uppsagnir á lykilstjórnendum sé gríðarlegt högg fyrir stjórnendur á vettvangi og málaflokkinn í heild sinni og ákvörðunin um að leggja niður frístundamiðstöðvarnar geri lítið úr áralangri uppbyggingu og þróun frístundastarfs.
„Þessar breytingar færa óhjákvæmilega stoðþjónustu við frístundaheimili og félagsmiðstöðvar fjær vettvangi. Ekki er hægt að sjá að þessi breyting bæti þjónustu né styrki fagstarf heldur þvert á móti gerir hún stjórnendum frístundaheimila og félagsmiðstöðva erfiðara fyrir að sækja bæði faglegt bakland og stuðning í sínu starfi.“
Samtökin hafa líka áhyggjur af afdrifum ýmissa verkefna sem miðstöðvarnar hafa staðið fyrir, til dæmis starf fyrir eldri ungmenni, 16+ starf Miðbergs og Hinsegin félagsmiðstöð Tjarnarinnar.
„Hver framtíð þessara verkefna er með öllu óljós eftir breytingarnar.“
Samtökin lýsa einnig yfir vonbrigðum með það sem þau kalla skort á samráði við þessar breytingar og hafa verulegar áhyggjur af afleiðingum þeirra fyrir viðkvæma hópa barna og ungmenna.