Ríkisútvarpið hefur sagt upp á bilinu 10 til 15 manns. Er bæði um að ræða uppsagnir og að ekki verður ráðið í störf sem losni.Vísir greindi fyrst frá.Að sögn Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra er um að ræða hagræðingaraðgerðir og rekstur allra deilda stofnunarinnar sé til skoðunar. Að hluta til er um uppsagnir að ræða en hluta til ekki verði ráðið í störf sem losni þar sem starfsmenn eru komnir á aldur. Er um að ræða 10 til 15 stöðugildi.
Uppsagnir hjá RÚV – Á annan tug stöðugilda tapast