Vegagerðin hyggst hætta með fimmtudagsferð Grímseyjarferjunnar Sæfara, og sigla aðeins þrisvar í viku yfir haust og vetrarmánuði. Að sögn G. Péturs Matthíassonar hjá Vegagerðrinni er verið að skoða þessi mál en ferðin er lítið nýtt og þörf fyrir að hagræða. Tólf til fimmtán manns höfðu vetursetu í eyjunni í vetur en aðeins eru nokkur ár síðan að yfir 100 bjuggu þar að staðaldri.
„Þeim gæti ekki verið meira sama hvort við förum í eyði þessu liði. Þetta er bara blaut tuska í andlitið og ekkert annað. Það er alveg nógu erfitt að draga fram lífið í nútíma samfélagi, það er algjör óþarfi hjá ríkinu að gera það erfiðara,“ segir Bjarni Reykjalín Magnússon, íbúi í Grímsey.
Fimmtudagsferðin hefur verið sérstaklega nýtt til þess að koma ferskum fisk frá eyjunni á markaði og sömuleiðis hefur þetta töluverð áhrif á ferðaþjónustu, sem alltaf er að aukast.
Halla Ingólfsdóttir, íbúi í Grímsey segir að ef vilji ríkisins sé að byggð haldist í Grímsey, þá séu þau háð samgöngum sem þurfi að halda úti svo sómi sé að - en hún er ekki of bjartsýn með framhaldið:
„Ég hef það á tilfinningunni að þeir ætli að skera þetta meira, þetta sé bara byrjunin. Og svo ætli þeir leið og þegar rykið verður sest með þessa ferð ætli þeir að taka af okkur sunnudagsferðina á sumrin líka. Við trúum ekki að þetta sé virkilega. En við erum farin að upplifa það að það sé vilji að við komum okkur í land. Hvað ætlar ríkistjórnin að gera eða er hún bara að bíða eftir því að við komum okkur í land? Eða eruð þið að bíða hægt og rólega eftir að við deyjum, bara gefumst upp? Þetta er heimilið mitt, þetta er líf mitt,“
Baráttan um byggð í Grímsey er ekki ný af nálinni og nær aftur til aldamótanna 1000, þegar að Ólafur helgi Noregskonungur vildi eignast eyjuna. Einar Þveræringur mótmælti því og hefur ræða hans við það tilefni verið innblástur í m.a. sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og gegn erlendum áhrifum hér á landi:
„Ég heyri stundum frá fólki í landi að fólk segi: „Æji farið bara að koma ykkur í land, þið eruð bara baggi á þessu þjóðfélagi.“ Ég held samt að meirihluti Íslendinga sé ekki sáttur við ef Grímsey fer í eyði. Fyrir hverju barðist Einar Þveræingur þegar að Noregskonungur vildi kaupa Grímsey?“ Sagði Halla Ingólfsdóttir.
Grímseyjarferjan Sæfari hefur bilað títt undanfarin ár, sem hefur kostað Vegagerðina hundruð milljóna króna og hefur þýtt mikið rask í samgöngum fyrir eyjaskeggja. Bæjarstjórinn á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir, tekur undir með Grímseyingum:
Sæfari hefur verið í slipp stundum þrjá mánuði á ári, jafnvel lengur. Það er náttúrulega óþolandi fyrir íbúana úti í eyju. Það er upplifun okkar að stjórnvöld séu núna að draga tennurnar hægt og rólega og með mjög kvalafullum hætti úr Grímseyingum
Ferjan Sæfari á samkvæmt áætlun að sigla út í eyju á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum allan ársins hring. Frá miðjum janúar og fram í september hefur einnig verið siglt á fimmtudögum og á sumrin einnig á sunnudögum. Þá er einnig hægt að fljúga út í Grímsey þrisvar í viku, en það er margfalt dýrara en að sigla.