Tilkynnt var um ungmenni á torfærumótorhjólum að spæna upp gras í Hafnarfirði eða Garðabæ í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ungmennunum var fylgt eftir með dróna að heimili.
Lögreglan hafði afskipti af þremur ökumönnum sem óku án ökuréttinda. Einn þeirra hefur aldrei haft ökuréttindi og er þetta í fjórða sinn sem hann er kærður fyrir sama brot. Hann var með barn í bifreiðinni og var barnavernd látin vita.
Fimmtíu mál voru mál skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan 17 í gær þar til í morgun klukkan 5.