Ungmenni flutt á lögreglustöð eftir slagsmál - DV

Ungmenni flutt á lögreglustöð eftir slagsmál - DV

Í nótt var tilkynnt um ungmennaslagsmál í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem er Austurbæ, Miðbær, Vesturbær og Seltjarnarnes. Var eitt ungmenni flutt á lögreglustöð þar sem foreldrar sóttu viðkomandi.

Frá þessu greinir í dagbók lögreglu. Í sama umdæmi gerðist það að lögregla var kölluð til vegna ökumanns sem hafði ekið bíl sínum út af og á stein skammt frá veginum. Ökumaður er grunaður  um að aka undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda.

Tveir menn voru tilkynntir í miðborginni vegna ógnandi tilburða. Voru báðir handteknir og fluttir á lögreglustöð. Þurfti lögregla að beita lögreglutökum alveg þangað til mennirnir voru komnir í fangaklefa, svo slæmt var ástand þeirra, segir í dagbók lögreglu.

 

#eftir #flutt #lögreglustöð #slagsmál #ungmenni


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/2/ungmenni-flutt-logreglustod-eftir-slagsmal/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260