Sextán ára bresk stúlka segir það hafa verið nýtt áfall þegar piltarnir sem nauðguðu henni sluppu við fangelsisvist. Þeir voru sakfelldir fyrir tvær hópnauðganir.
Þrír fjórtán og fimmtán ára piltar voru í vikunni sakfelldir fyrir tvær hópnauðganir. Tveir eldri drengirnir voru fjórtán ára þegar þeir nauðguðu tveimur stúlkum, í sitt hvorri árásinni, og tóku það upp á myndband. Þrettán ára drengur hvatti þá áfram við aðra nauðgunina. Drengirnir deildu upptökum af nauðgununum á samfélagsmiðlum.
Önnur stúlkan hafði kynnst einum árásarmannanna á samfélagsmiðlum. Hún taldi sig vera að fara á stefnumót við hann en þá réðist hann á hana ásamst félögum sínum og nauðgaði henni.
Piltarnir voru dæmdir til eins og hálfs til þriggja ára endurhæfingar og eldri drengirnir tveir verða að sæta eftirliti og umsjón. Enginn þeirra þarf að sitja inni. Tveir eldri drengirnir voru vistaðir í tæpan mánuð í varðhaldi fyrir ungmenni milli handtöku og réttarhalda. Eldri drengirnir voru dæmdir í þriggja mánaða útgöngubann og bannað að hafa samband við þolendurna í tíu ár. Dómari sagði glæpi þeirra alvarlega en vildi ekki senda þá í fangelsi þar sem hann óttaðist að það myndi forherða þá sem glæpamenn. Dómurinn vakti mikla hneykslan.
Önnur stúlkan var í viðtali við BBC í dag. Hún sagði að það hefði verið eins og að fá grjót í andlitið þegar hún hlýddi á dómsuppsöguna. Stúlkan spurði hvað það hefði haft upp á sig að kæra nauðgunina og ganga í gegnum það sársaukafulla ferli. Hún sagði að það hefði liðið hálft ár frá nauðguninni þar til hún gat sagt frá henni, hún hefði þarfnast hjálpar en ekki vitað hvern hún ætti að tala við. Eftir árásina hefði hún reynt að ná tökum á lífi sínu en væri stöðugt reið, döpur, þreytt og stressuð.