Drengur á fimmtánda aldursári var kýldur í andlitið í Hamraborg í Kópavogi í gær. Hópur jafnaldra hans er grunaður um árásina. Þetta staðfestir Sigrún Kristín Jónsdóttir lögreglufulltrúi.
Hún segir bæði brotaþola og þá sem grunaðir eru um árásina vera af erlendu bergi brotna. Talið sé að þeir séu samlandar og tengsl þeirra á milli en lögregla er enn að afla upplýsinga um hverjir kunni að hafa komið að árásinni. Allavega tvö ungmenni á sama reki urðu vitni að árásinni.
Drengurinn var fluttur á slysadeild en Sigrún kveðst ekki vita hvert ástand hans sé. Árásin hafi verið alvarleg en meiðsli drengsins séu ekki þess eðlis að hann sé í lífshættu. Sjónarvottar sem fréttastofa ræddi við í gær sögðu drenginn hafa misst meðvitund en Sigrún segir það ekki koma fram í skráningarkerfum lögreglu.
Ekki stendur til að handtaka þau grunuðu í ljósi ungs aldurs þeirra. Sakhæfisaldur á Íslandi er 15 ár. Lögregla hyggst boða þau á fund ásamt foreldrum þeirra og barnavernd. Hún segir fórnarlamb árásarinnar ekki búa í Kópavogi og því hafi ekki verið rætt við skólastjóra í hverfinu.
Óljóst hve langur viðbragðstíminn var
Aðspurð segist Sigrún ekki vita hver viðbragðstími sjúkraflutningamanna var. Tvennar sögur fóru af því hversu skjótt viðbragð var. Starfsmenn heilsugæslunnar í Hamraborg hlúðu að drengnum á meðan beðið var eftir sjúkrabíl.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var biðin eftir sjúkrabílnum það löng að hringja þurfti aftur til að kanna hvenær væri von á honum. Nærri hálftími hafi liðið frá fyrsta símtali og þar til sjúkrabíll kom á staðinn.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins segir að aðeins ellefu mínútur hafi liðið frá fyrsta símtali þar til sjúkrabíll kom á vettvang. Forgangur hafi verið hækkaður eftir að seinna símtalið barst.