Framkvæmdum á um 900 metra kafla á hringveginum austan hringtorgs við Hveragerði verður haldið áfram í dag, milli níu að morgni og átta í kvöld. Umferð verður stýrt meðan á þessu stendur.
Vegagerðin biður vegfarendur að sýna aðgát og virða merkingar.
Framkvæmdirnar við Hólmsá, rétt fyrir utan Reykjavík, ollu talsverðum töfum í gær.