Um 200 enn fastir í húsarústum

Um 200 enn fastir í húsarústum

Um 200 enn fastir í húsarústum

Hjálparsamtökin Oxfam telja að fyrir hamfarirnar í gær hafi 7,9 milljónir þurft á mannúðaraðstoð að halda í Venesúela. Magnus Corfixen, yfirmaður mannúðarmála hjá samtökunum, segir jarðskjálftana bæta ofan á þegar alvarlega mannúðarkrísu. Samtökin hafi byrjað að ákvarða umfang tjónsins og hverjar brýnustu þarfir samfélagsins séu.

100 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eru þegar komnir til Venesúela og vinna í samstarfi við ríkisstjórnina, að sögn Stéphane Dujarric, talsmanns stofnunarinnar. Hún bregðist tafarlaust við eyðileggingunni sem fylgi skjálftanum en búast megi við að viðbrögðin haldi áfram á komandi mánuðum.

Djuarric sagði Antonio Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hryggan yfir mannfalli og tjóni og að hann sendi fjölskyldum fórnarlamba skjálftanna samúðarkveðjur.

Halima Hussein, samhæfingarstjóri Lækna án landamæra í Venesúela, segir mörg svæði enn án farsíma- og internetsambands eftir skjálftann. Rafmagnslaust sé einnig á nokkrum svæðum í La Guaira, sem hafi orðið verst úti. Mörg sveitarfélög nýttu íþróttaleikvanga til að koma húsaskjóli yfir þá sem hefðu misst heimili sín.

Jorge Rodriguez, þingforseti í Venesúela, hefur staðfest að 188 hið minnsta hafi farist og 1520 slasast í skjálftunum. Talið sé að um 200 manns séu enn fastir í húsarústum. Hann sagði einnig að 250 byggingar hið minnsta hafi eyðilagst að hluta til eða alveg.

Komið er fram yfir hádegi í Venesúela og tjón eftir tvo öfluga jarðskjálfta gærkvöldsins að koma betur í ljós. Hér eru ljósmyndir frá héraðinu La Guaira, sem varð verst úti.

Leó páfi hefur sent 100 þúsund evrur, jafnvirði tæplega 15 milljóna íslenskra króna, í neyðaraðstoð. Fjármagnið kemur frá skrifstofu í Vatikaninu sem ber ábyrgð á góðgerðarstarfi páfans og aðstoðar íbúa landa sem eiga í erfiðleikum.

Klukkan er að ganga 12 á hádegi í Venesúela. Þess vegna skulum við rifja aðeins upp hvað hefur gerst.

  • Tveir öflugir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir rétt eftir klukkan 18 í gærkvöld. Skjálftarnir urðu með tæplega mínútu millibili á minna en 30 kílómetra dýpi bili vestur af höfuðborginni Caracas. Sá síðari var sá stærsti í landinu frá 1900.
  • Staðfest er að 164 eru látnir og 971 slasaðir, samkvæmt Delcy Rodríguez, forseta landsins. Bandaríska jarðfræðistofnunin gaf út mat á hugsanlegu tjóni vegna skjálftanna og samkvæmt því er líklegt að manntjón verði á bilinu milli tíu til 100 þúsund.
  • Verst er ástandið í héraðinu La Guaira, norður af Caracas. Rodríguez sagði tugi bygginga þar hafa hrunið til grunna og kallaði það hamfarasvæði.
  • Björgunarsveitir leita í húsarústum og heyrst hefur til fólks kalla á hjálp. Sérhæfðar björgunarsveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna eru á leiðinni til landsins.
  • Fjölmörg lönd hafa boðið fram aðstoð sína. Bandarísk stjórnvöld hafa heitið því að senda björgunarsveitir og hjálpargögn. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lofaði skjótum og skilvirkum viðbrögðum þeirra.
  • Þjóðverjar eru reiðbúnir að senda herflugvélar með hjálpargögn og Svisslendingar ætla að senda 80 björgunarmenn, átta leitarhunda og 18 tonn af búnaði. Hollendingar ætla einnig að senda björgunarteymi. Spánverjar og Frakkar hafa einnig boðist til að senda björgunarsveitir. Kínverjar og Indverjar eru einnig reiðbúnir að bjóða fram aðstoð.

Meira en hundrað byggingar hafa hrunið í héraðinu La Guaira, norður af Caracas, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum. Sérhæfðar björgunarsveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna eru á leiðinni til landsins.

„Þó að umfang tjónsins sé enn óljóst er ljóst að tjónið var mikið,“ segir í tilkynningu frá samhæfingarskrifstofunni.

Delcy Rodríguez, forseti Venesúela, sagði fyrr í dag að ástandið væri alvarlegast í héraðinu og kallaði það hamfarasvæði.

Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir stofnunina tilbúna að veita þá aðstoð sem þörf er á. Hann sagði í yfirlýsingu að „gríðarlegt sameiginlegt átak þurfi næstu daga til að styðja viðbrögð stjórnvalda og hjálpa samfélagöum.“

Jarðskjálftarnir tveir eru með þeim öflugustu í sögu landsins. Skemmdir eru miklar og óttast er að þúsundir hafi látið lífið.

Jarðskjálftarnir eru samt sem áður ekki með þeim stærstu sem hafa orðið í heiminum. Hér er listi yfir öflugustu jarðskjálfta sem mælst hafa, samkvæmt bandarísku jarðfræðistofnuninni.

  • Stærð 8,6: Arunachal Pradesh í Indlandi, 15. ágúst 1950 – 780 létust
  • Stærð 8,7: Alaska, Bandaríkin, 3. febrúar 1965 – enginn lést
  • Stærð 8,8: Undan ströndum Esmeraldas í Ekvador, 31. janúar 1906 – 1.500 létust
  • Stærð 8,8: Biobio í Síle, 27. febrúar 2010 – 523 létust
  • Stærð 8,8: Kamtsjatka í Rússlandi, 29. júlí 2025 – enginn lést
  • Stærð 9: Kamtsjatka í Rússlandi, 4. nóvember 1952 – allt að 15.000 létust
  • Stærð 9,1: Undan ströndum Tōhoku í Japan, 11. mars 2011 – Yfir 15.000 létust
  • Stærð 9,1: Undan ströndum Súmötru í Indónesíu, 26. desember 2004 – Yfir 280.000 létust
  • Stærð 9,2: Alaska í Bandaríkjunum, 28. mars 1964 – 130 létust
  • Stærð 9,5: Biobio í Síle, 22. maí 1960 – 1.655 létust

Myndir og myndskeið frá Venesúela halda áfram að berast. Þetta myndskeið tók Erick Monasterios sem býr í El Junquito, úthverfi höfuðborgarinnar Caracas. Hann var að streyma beint af götu hverfisins þegar hús hrundi. Mikil hræðsla og ringulreið greip um sig og það má heyra hann hrópa „Móðir mín! Sjitt, sjitt, sjitt!“ og öskur annarra íbúa.

Miklar skemmdir urðu á alþjóðaflugvellinum í Caracas eins og sést á þessu myndskeiði. Wilmer Azuaje, sem var á flugvellinum þegar skjálftarnir riðu yfir, sýnir eyðilegginguna.

Sérhæfðar björgunarsveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna eru á leiðinni til Venesúela, að sögn Delcy Rodriguez, forseta landsins. Hún sagðist í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnara hafa átt samtöl við fjölmarga þjóðarleiðtoga og tengiliði Sameinuðu þjóðanna í Venesúela.

Hollendingar ætla líka að senda björgunarsveit til landsins og utanríkisráðherra landsins tilkynnti um tveggja milljóna evra björgunarpakka þar sem sendar yrðu björgunarsveitir, búnaður og hundar.

Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafa ekki borist beiðnir um aðstoð vegna jarðskjálftanna. Í svari Ægis Þórs Eysteinssonar, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins, segir að ráðuneytið fylgist grannt með þróun mála.

Jarðskjálftarnir tveir urðu með um mínútu millibili og áttu upptök sín stuttu frá hvor öðrum. Hér er kort sem sýnir staðsetningu þeirra og áhrifasvæði. Áhrifa hans var meðal annars vart í Bogotá, höfuðborg Kólumbíu, sem er í rúmlega 1500 kílómetra fjarlægð.

Að minnsta kosti 164 eru látnir og 971 slasaður eftir jarðskjálftana tvo, að sögn Delcy Rodríguez, forseta Venesúela.

Hún segir þunga björgunaraðgerða færast til La Guaira-héraðs, norður af Caracas sem varð verst úti í skjálftunum. Stjórnvöld ætli einnig að setja á fót 200 milljón bandaríkjadala sjóð með fjármagni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að endurbyggja innviði, sjúkrahús og aðrar byggingar.

Mikið tjón er eftir jarðskjálftana tvo sem urðu með stuttu millibili í Venesúela í gærkvöldi. Margar byggingar hrundu í skjálftunum, að hluta til eða alveg.

Í byrjun sjást eyðileggingar á byggingu sjónvarpsstöðvarinnar Venezolana de Televisión (VTV) í Caracas.

Í myndbandinu sjást einnig miklar skemmdir á fjölbýlishúsi, meðal annars má sjá stórar sprungur í veggjum og heilu veggina sem hafa hrunið úr húsinu.

Í þessu myndbandi má sjá ástandið í Venesúela eftir jarðskjálftana. Ljóst er að tjón vegna þeirra er mjög mikið og yfirvöld óttast að tugir þúsunda eigi eftir að finnast látnir. Margir íbúar vörðu nóttunni á götunni af ótta við að byggingar hrynji og eftirskjálftar ríði yfir.

Myndband sem var tekið þegar annar jarðskjálftanna reið yfir í Chacao-hverfi í Caracas. Gler í húsi hristist og íbúar flýja.

Bandaríska jarðfræðistofnunin (USGC) segir stærri jarðskjálftan sem reið yfir Venesúela í gærkvöld hafa verið þann öflugasta síðan 1900. Fyrri jarðskjálftinn sem reið yfir var 7,2 að stærð og seinni skjálftinn, sem reið yfir um mínútu síðar var af stærðinni 7,5.

Samkvæmt gögnum stofnunarinnar er það öflugasti jarðskjálfti sem riðið hefur yfir landið síðan 29. október 1900. Sá var 7,7 að stærtð og var kallaður San Narciso-jarðskjálftinn.

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin, oftast kölluð rústabjörgunarsveitin í daglegu tali, hefur ekki verið boðuð til Venesúela eftir skjálftann. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að gjarnan líði talsverður tími þar til slík beiðni berst í gegnum Sameinuðu þjóðirnar.

Hann segir að í svona aðstæðum þurfi heimamenn að bera þungann af fyrsta viðbragði áður en leitað er til alþjóðasamfélagsins eftir hjálp. Þá skipti sköpum að ríkin séu reiðubúin að taka á móti alþjóðlegum björgunaraðilum.

Íslenska rústabjörgunarsveitin fór síðast til Tyrklands eftir jarðskjálfta sem reið þar yfir fyrir tveimur árum.

Forseti Venesúela hefur rætt við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í síma. Delcy Rodriguez greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum X og þakkaði Bandaríkjunum fyrir stuðninginn á þessum erfiða tíma.

Kína og Indland hafa bæst í hóp ríkja sem hafa heitið Venesúela stuðningi eftir jarðskjálftana.

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Venesúela hafa sett á laggirnar vefsíðu þar sem fólk getur skráð nöfn fólks sem er saknað eftir jarðskjálftana. Þegar þetta er ritað hafa rúmlega 8.500 verið skráðir, en þar af hafa yfir 400 fundist eða verið afskráðir. Fréttastofa Reuters segist ekki geta sannreynt tölurnar.

Dæmi voru um að íbúar í Caracas hefðu varið stórum hluta næturinnar utandyra.

Yfirvöld báðu fólk um að halda sig utan veggja heimila sinna á meðan mat væri lagt á skemmdir.

Á meðal fólks blundaði óttinn um kröftuga eftirskjálfta eða að byggingar sem þegar höfðu skemmst í stóru skjálftunum myndu skyndilega hrynja til grunna.

Delcy Rodriguez, forseti Venesúela, hefur greint frá því að 32 hið minnsta séu látnir eftir jarðskjálftana. Tilkynningar hafa borist um 700 sem slösuðust í skjálftunum. Frá þessu er sagt í frétt Reuters..

Bandarísk yfirvöld ætla að senda björgunarsveitir og hjálpargögn til Venesúela. Frá þessu greinir Jeremy Lewin, aðstoðarráðherra í bandaríska utanríkisráðuneytinu.

Lönd í Rómönsku Ameríku hafa einnig rétt fram hjálparhönd.

Nayib Bukele, forseti El Salvador, segir þarlend stjórnvöld hafa safnað saman um 50 tonnum af útbúnaði og öðrum hjálpargögnum. Þá séu 300 björgunarsveitarmenn reiðubúnir til að leggja í hann til Caracas.

Í Ekvador hefur hjálpargögnum einnig verið safnað saman. Daniel Noboa Azin, forseti landsins, segir þau verða brátt send til Venesúela.

Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, segir að þar sé verið að meta hvaða aðstoð Brasilíumenn geti veitt „systurþjóð“ sinni í Venesúela.

Delcy Rodríguez, forseti Venesúela, hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu.

Í kvöld sendi hún samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra sem létust í jarðskjálftunum.

Rodríguez greindi einnig frá því að alþjóðaflugvellinum í Caracas hefði verið lokað vegna skemmda sem jarðskjálftarnir ollu.

Byggingar í höfuðborginni Caracas hrundu til grunna í jarðskjálftanum. Upplýsingar um manntjón og umfang eyðileggingar liggja ekki fyrir. Myndir frá borginni sýna að sums staðar hafa hús gjöreyðilagst.

Bandaríska jarðfræðistofnunin telur töluverðar líkur á miklu manntjóni og mikilli eyðileggingu eftir skjálftana. Þá eru líka taldar líkur á að stórir eftirskjálftar komi til með að fylgja stóru jarðskjálftunum sem urðu í kvöld.

Stofnunin segir 44% líkur á að dauðsföll eftir jarðskjálftana geti orðið fleiri en 10 þúsund. 30% líkur eru á að þau verði fleiri en 100 þúsund.

Gott kvöld.

Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með tæplega mínútu millibili rétt eftir klukkan tíu að íslenskum tíma í kvöld.

Sá fyrri var 7,2 að stærð en sá seinni 7,5.

Flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út í Venesúela og nokkrum eyríkjum í Karíbahafinu, þar á meðal Puerto Rico, Jómfrúaeyjum og Curaçao. Þær hafa verið afturkallaðar.

Myndir frá höfuðborginni Caracas sýna mikla eyðileggingu en þó nokkur fjöldi bygginga hrundi í jarðskjálftunum.

Ég heiti Grétar Þór Sigurðsson og ætla að flytja ykkur helstu tíðindi frá Venesúela í nótt.

#enn #fastir #húsarústum


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-25-um-200-enn-fastir-i-husarustum-479374

📰 Aðrar fréttir

Vegir lokast vegna vatnavaxta
📅 01.10.2026 👁️ 0
Vegir lokast vegna vatnavaxta
Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökul...
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu skipverja Bandero, um að fá haldlagningu aflétt af farsíma sínum, var hafnað.
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur brugðist við fregnum af áætlunum Rússa til þess að ráða hann og fleiri andófsmenn af dögum í s...
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur óvænt boðað til starfsmannafundar hjá fyrirtækinu eftir hádegi í dag. Frá þessu greina Vísir og mbl.i...
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
34 ára súdanskur flóttamaður hefur verið settur í gæsluvarðhald í Frakklandi, grunaður um að hafa nauðgað og myrt 93 ára konu á heimili hennar í Toulo...
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
📅 01.10.2026 👁️ 0
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump Fréttin1. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Fjórðungur bandarískra ful...
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði bo...
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
The Sikh activist from Dumbarton was arrested in 2017 in connection with alleged terror offences.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrj...
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt...
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G.  í ...
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
📅 01.10.2026 👁️ 0
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki...
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
📅 01.10.2026 👁️ 0
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á ...
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðsk...
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í gær að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Euro...
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
📅 01.10.2026 👁️ 0
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
Á stjórnarfundi RÚV í gær var lögð fram bókun um að beina þeim tilmælum til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, að...
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
Yfirlæknir og deildarstjóri á Landspítala gera athugasemdir við þátt Kveiks á RÚV þar sem fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum. ...
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þeir verði í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikur, eða til 28. október. Málið varðar innflutning á fimm kílóum af ...
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
📅 01.10.2026 👁️ 0
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
Thick fog has disrupted operations at Tenerife North Airport this morning (Thursday), forcing four incoming flights to divert because of poor visibili...
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
📅 01.10.2026 👁️ 0
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
The president wants AI to be called super intelligence - or SI - the same initials used by Slovenian domains.
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
Einnig verður rætt við oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, be...
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
Aðalmeðferð í málinu hófst á þriðjudag og hélt vitnaleiðsla áfram í dag. Ntentes hefur þegar gefið skýrslu fyrir dómi auk þess sem hann hefur sætt gæs...
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
Fundurinn á að vera haldinn í Póllandi seinna í október en á meðal þeirra sem hafa ekki fengið boð á hann eru Frakkar, Bretar og ríkisstjórnir Eystras...
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 0
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
Hotels in the Canary Islands are evolving. Distinctive architecture and nature-led experiences are giving holidaymakers more choice, while offering im...
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
Matthías Már Magnússon, útvarpsmaður og dagskrárstjóri Rásar 2, greinir frá því á Facebook-síðu að hann hafi greinst með krabbamein á dögunum. Fram un...
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer hörðum orðum um Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-s...
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, gagnrýnir klúðrið varðandi útboð knattspyrnustúku við Kórinn. Algjör óvissa ríkir um framhaldið o...
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
Hjörleifur Björnsson skrúðgarðyrkjufræðingur, einn eigendanna, leggur áherslu á að hugsa um garðinn og fasteignina í heild. Mikilvægasta verkið sé nef...
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“ Borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, Hild­ur Björns­dótt­ir, leggst gegn stó...
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
📅 01.10.2026 👁️ 0
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, segist hafa séð leigubílstjórann Saint Paul Edeh, sem hann kallar „Heilagan Pál“ eða „Dýrlinginn“, r...
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
Matthías greindi frá tíðindunum á Facebook nú í morgun. „Fyrir tveim vikum endaði ég á Bráðamóttökunni sökum orkuleysis, var einhvern veginn alveg búi...
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað. Þau hjónin ákváðu að minnka við s...
What happened in failed execution of Christa Pike - and what next?
📅 01.10.2026 👁️ 0
What happened in failed execution of Christa Pike - and what next?
The convicted killer is in hospital in Tennessee after surviving two lethal injections, in a case that has raised many questions.
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
Ísland féll um tvö sæti í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.Ísland er í 26. sæti en...
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
📅 01.10.2026 👁️ 1
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
The review comes after a woman spoke out after being assaulted in a Maidenhead hotel.
Allt í hnút á Norður-Írlandi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Allt í hnút á Norður-Írlandi
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um...
Breiðhyltingum blöskrar ruslið í Iðufelli – „Það er skömm að þessu“
📅 01.10.2026 👁️ 2
Breiðhyltingum blöskrar ruslið í Iðufelli – „Það er skömm að þessu“
Íbúum í Breiðholtshverfinu í Reykjavík blöskrar ruslið og bílflökin sem hafa safnast upp við Iðufelli 14. Heilbrigðiseftirlitið hyggst hafa samband vi...
Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins
📅 01.10.2026 👁️ 0
Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins
Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins Glúmur BaldvinssonGlúmur er afar ósáttur við Ríkisútvarpið Mynd: Facebook Glúmur Ba...
Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins
📅 01.10.2026 👁️ 2
Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir liggja á að finna lausn í kjaramálum áður en frestur til að segja upp kjarasamning...
Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli
Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli Keflavíkurflugvöllur Mynd: Stjórnarráðið Fimm erlendir ríkisborgarar hafa verið...
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
📅 01.10.2026 👁️ 2
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur Fram­boð hót­el­her­bergja jókst um 1,7 pró­sent í ág­úst en gistinótt­um á hót­el­um fækk­aði um 2,5 pró­sen...
Ivan Toney denies Soho nightclub assault
📅 01.10.2026 👁️ 2
Ivan Toney denies Soho nightclub assault
England striker Ivan Toney pleads not guilty to assaulting a man at a Soho nightclub last year.
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
📅 01.10.2026 👁️ 2
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump Varn­ar­mála­ráðu­neyt­ið seg­ir Elon Musk stýra Proj­ect Mer­idi­an ásamt Pal­mer Luckey og Ne...
Esther Rantzen surprises Nicholas Winton with children he saved
📅 01.10.2026 👁️ 0
Esther Rantzen surprises Nicholas Winton with children he saved
One of her most memorable career moments came during one particular episode in 1988 - the footage of which has gone viral several times over in recent...
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
📅 01.10.2026 👁️ 2
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal Laugardalur Mynd: Víkingur Samnemendur unglings í Laugardal bundu hann og skildu eftir í kja...
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
📅 01.10.2026 👁️ 4
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík,“ segir Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Ari hef...
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
📅 01.10.2026 👁️ 4
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, gagnrýnir meirihlutann í borginni fyrir að kaupa stóla og skjái í borgarstjórnarsalinn á sam...
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 4
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
„Íslenska ullin hefur varið kindurnar okkar fyrir veðri í meira en þúsund ár. Ullin er tvískipt: mjúka þelið fangar loft og heldur hita, á meðan togið...
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
Helena Líndal, forstöðumaður eitrunarmiðstöðvar Landspítalans, ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Töluverð aukning verður alltaf á símtölum í ...
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar flutningabíll valt á veginum. Bíllinn og vagn...