Forsætisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, hinna svokölluðu NB8-ríkja, þar á meðal Kristrún Frostadóttir, segja framtíð Úkraínu vera innan Evrópusambandsins og lýsa stuðningi við að ESB hefji aðildarviðræður við ríkið. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherranna nú síðdegis. Tilefnið er fundur þeirra í Tallin í Eistlandi með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta.
Í yfirlýsingunni ítreka þeir stuðning við Úkraínu og sjálfsvarnarrétt ríkisins og segjast munu styðja varanlegan frið eftir diplómatískum leiðum, þrátt fyrir að Rússar hafi hafnað öllum alvöru friðarumleitunum.
Stríðið í Úkraínu hafi breytt nútímahernaði og Úkraína sé beinn þáttakandi í vörnum Evrópu í krafti reynslu á vígvellinum, tækniframfara og framleiðslugetu. Ríkin styðja aðild Úkraínu að NATO og leggi til aukið samstarf við Úkrínu í varnarmálum, ekki síst hvað varðar framleiðslu á drónum.