Ugla Stefanía Kristjönudóttur Jónsdóttir hefur stefnt Eldi Smára Kristinssyni Ísidóri fyrir héraðsdóm og krefst þess að ummæli sem Eldur viðhafði um hana á samfélagsmiðlunum Facebook og X í byrjun október árið 2023 verði dæmd auð og ómerk. Ummælin eru eftirfarandi samkvæmt stefnu Uglu:
„Barnaníðingur“
„Þessi manneskja styður geldingar barna“
„Þessi manneskja hvetur til ógagnreyndra meðferða“
„Þessi manneskja styður tilraunastarfsemi á börnum“
„Þessi manneskja ætti að vera í fangelsi“
Ugla krefst þess jafnframt að Eldur greiði henni tvær milljónir króna í miskabætur. Í þriðja lagi krefst hún þess að Eldi verði gert skylt að fjarlægja af síðu sinni á samfélagsmiðlinum X þau ummæli sem verða dæmd dauð og ómerk, að viðlögðum dagsektum að fjárhæð 30 þúsund krónur á dag.
Í stefnunni segir að Ugla hafi á undanförum árum beitt sér í baráttunni fyrir réttindum trans fólks þar sem hún hafi miðlað af eigin reynslu. Eldur sé alþjóðaformaður LGB samtakanna, sem áður hétu Samtökin 22, og sé hann virkur þátttakandi í umræðu um réttindi trans fólks. Segir að Eldur tjái sig mikið á samfélagmiðlum þar sem hann beini oft ummælum sínum að Uglu persónulega. Umstefnd ummæli sé að finna á mynd sem hann hafi útbúið sjálfur og birt ásamt mynd frá öðrum notanda samfélagsmiðilsins X. Myndin sýni skilti með andliti Uglu og fyrirsögninni „BARNANÍÐINGUR“. Fyrirsögnin sé skrifuð með hástöfum og undir henni séu fullyrðingarnar sem lesa má hér að ofan.
Hafi rekið ófrægingarherferð gegn sér
Ugla segir að Eldur hafi rekið ófrægingarherferð gegn sér og umstefnd ummæli séu aðeins brot af þeirri orðræðu sem hann hafi beint gegn henni á opinberum vettvangi. Hún segir að ummælin feli í sér ærumeiðandi aðdróttanir og Eldur hafi vegið að persónu hennar og æru, sem falla undir friðhelgi einkalífs hennar og séu stjórnarskrárvarin auk þess að njóta verndar í mannréttindasáttmála Evrópu. Eldur hafi jafnframt farið út fyrir mörk ákvæða stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi. Ummælin séu auk þess óviðurkvæmileg og beri því að ómerkja þau.
Hún segir jafnframt að ummælin feli í sér alvarlega og grófa ásökun um refsiverðan verknað, þátttöku í slíkum verknaði eða stuðning við hann. Þau feli í sér ásökun um svívirðilega meðferð á börnum og séu Uglu augljóslega til hnekkis.
Ummælin séu jafnframt ósannaðar staðhæfingar um staðreyndir. Framsetningin sé afdráttarlaus og feli í sér staðhæfingu um að Ugla hafi gerst sek um refsiverða og siðferðislega ámælisverða háttsemi gagnvart börnum. Enginn grundvöllur sé fyrir staðhæfingunum enda hafi Ugla aldrei verið kærð til lögreglu eða sætt lögreglurannsókn fyrir verknað af þessu tagi. Þvert á móti berjist hún fyrir kynfrelsi barna og rétti þeirra til að ráða yfir eigin líkama.
Segir myndina og ummælin ekki frá sér komin
Eldur hafnar kröfum Uglu í greinargerð sinni. Upphaf málsins séu grein sem Ugla birti sem dálkahöfundur í fjölmiðlinum METRO, þar sem hún hefur skrifað um málefni trans fólks. Þann 3. október 2023, degi áður en umstefnd ummæli birtust, birti Ugla pistil undir fyrirsögninni „We accept teenagers taking the pill – why don´t we feel the same about puberty blockers?“ Í pistlinum var fjallað um svokallaða „kynþroskablokkara“ eða lyf sem gefin hafa verið börnum með kynama, en þau lyf stöðva eða seinka framgangi kynþroska tímabundið. Eru þau hluti af kynleiðréttingarferli barnanna.
Greinin var skrifuð í tiltefni af þeirri ákvörðun breskra heilbrigðisyfirvalda að hætta notkun á slíkum lyfjum fyrir börn.
Eldur segir að myndin sem Ugla vísar í, sem og ummælin undir henni, hafi ekki verið frá honum komin heldur frá öðrum notanda á X. Myndin hafi síðan birst í íslenskri þýðingu og hann sé ekki heldur höfundur þeirrar myndar. Hann hafi einungis endurbirt myndina og tjáð sig um efni hennar, þ.e. lýst sig sammála.
Eldur neitar því að hann hafi fullyrt að Ugla sé barnaníðingur eða hafi gerst sek um barnaníð, hann hafi ekki sjálfur viðhaft nein slík ummæli. Séu skrif hans skoðuð í samhengi sé ljóst að hann sé ekki að halda slíku fram. Fráleitt sé að hann hafi haldið því fram að hún hafi gerst sek um kynferðisofbeldi gegn börnum. Hins vegar: „Stefndi hefur hins vegar haldið því fram að ógagnreynd tilraunastarfsemi á börnum, þá m.a. með því að gefa börnum lyf, sem stöðva kynþroskaferlið, eða önnur slík inngrip, sé barnaníð,“ segir í greinargerðinni en bent er á að Ugla sjálf hafi ekki slíka meðferð með höndum heldur sé hún aktivisti.
Eldur vísar í greinargerð sinni í skýrslu sem bandaríska heilbrigðisráðuneytið birti 19. nóvember 2025 og heitir: „Treatment for Pediatrcik Gender Dysphoria“. Segir hann að þær fullyrðingar sem Ugla krefst ómerkingar á séu í samræmi við niðurstöður skýrslunnar, en þar eru þær læknisfræðilegu meðferðir sem börn með kynama hafi undirgengist gagnrýndar og lýst yfir áhyggjum af auknum fjölda læknisfræðilegra kynleiðréttinga barna á alþjóðavísu.
Ummælin falli innan marka tjáningarfrelsis
Eldur segir að ummæli hans sem honum er stefnt fyrir séu innan marka tjáningarfrelsis hans og vill auk þess halda því sérstaklega til haga að hann hafi ekki sjálfur látið þessi ummæli falla heldur endurbirt mynd þar sem ummælin komu fram.
Hann bendir á að þau málefni sem hann og Ugla takast á um séu ein umdeildustu ágreiningsmál samtímans og ummælin séu í öllu falli hluti af opinberri umræðu um þessi umdeildu málefni, sem leiði til þess að tjáningarfrelsið verði að túlkast rúmt hvað þau varðar. Þær skorður sem tjáningarfrelsinu séu settar, m.a. til verndar æru og mannorði annarra, beri að skýr þröngt og beita með gát.
Fyrirtaka var í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur í dag, þriðjudaginn 9. júní.