Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á NA landi boðaðar út vegna ferðamanns sem hafði hrasað illa á göngu við Hafragilsfoss skammt frá Dettifossi. Ljóst var í upphafi að nokkuð verkefni væri að koma sjúkling úr gilinu sem hann var í og var jafnframt óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslu í verkefnið. Svo vildi til að nánast á sama tíma var ferðamaður sem grunur var um að hefði ökklabrotnað í Hrútagili í Skaftafelli og var þyrlu beint þangað fyrst.
Tvö útköll björgunarsveita vegna slasaðra ferðamanna í dag