Héraðssaksóknari hefur ákært karl og konu fyrir að smygla tæplega 70 kílóum af fíkniefnum til landsins. Smyglið uppgötvaðist í júní þegar 56 kíló af amfetamíni, átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni, tæpt kíló af MDMA- og ketamínblöndu og tæpt kíló af metamfetamíni fundust í húsbíl.
Efnunum hafði verið komið fyrir á þremur stöðum í húsbílnum. Fólkið var á honum þegar það kom með Norrænu til Íslands snemma sumars. Eftir komuna til landsins hélt maðurinn einn áfram á bílnum og var handtekinn á tjaldstæðinu Hömrum við Akureyri næsta dag. Konan flaug hins vegar frá Egilsstöðum sama dag og hún kom til landsins á leið sinni heim til Belgíu.
Karlmaðurinn er 53 ára en konan 29 ára.
Í ákæru segir að karlmaðurinn hafi smyglað efnunum og fengið konuna með sér til að ljá ferðinni trúverðugra yfirbragð. Hann er ákærður fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Konan er ákærð fyrir hlutdeild í stórfelldu fíkniefnasmygli með því að hafa hjálpað manninum við smyglið. Það gerði hún samkvæmt ákæru með því að ferðast með honum frá Belgíu til Danmerkur og síðan áfram til Íslands til að ljá ferð þeirra trúverðugra yfirbragð.