Tveir starfsmenn sendinefndar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru handteknir af leyniþjónustu stjórnvalda í Herat, í vestur Afganistan á sunnudaginn. Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir því að sérstök staða starfsmanna þeirra verði virt.
Farhan Haq, talsmaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna Antonio Guterres, segir að Sameinuðu þjóðirnar viti ekki hverjar ásakanirnar eru á hendur starfsmönnunum og engum starfsmanni SÞ hafi enn verið leyft að hitta þá.
Hann skorar á yfirvöld í Afganistan að tryggja að forréttindi og friðhelgi starfsfólks Sameinuðu þjóðanna og embættismanna þeirra séu virt. Margar stofnanir Sameinuðu þjóðanna starfa víðs vegar um Afganistan, svo sem á sviði heilbrigðismála og mannúðaraðstoðar.
Hjálparstarfsmenn handteknir af siðferðislögreglu
Á laugardaginn kemur, 15. ágúst, verða fimm ár frá því að talibanar komust til valda í Afganistan. Starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annarra mannúðarsamtaka og hjálparstofnana er ýmsum takmörkunum háð í landinu.
Afgönskum konum er meinaður aðgangur að starfssvæðum Sameinuðu þjóðanna, þar með talið kvenkyns starfsmönnum og konum er bannað að koma á fjölda annarra svæða.
Um 20 hjálparstarfsmenn voru handteknir í júní í Herat-héraði nærri landamærunum við Íran af siðferðislögreglu talibana því skegg starfsmannanna voru ekki nógu síð. Þar á meðal voru starfsmenn sem unnu hjá stofnunum sem eru í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar. Mönnunum var síðan sleppt.
Tugir kvenna voru handteknar í júní einnig af siðferðislögreglunni fyrir að brjóta reglur um klæðaburð og fyrir að vera ekki í chador eða búrku, sem eru flíkur sem konum ber að klæðast yfir föt sín og hylja þau frá toppi til táa.
Meðal kvenna í hópi hinna handteknu var starfsmaður á spítala Lækna án landamæra en samtökin hafa mótmælt handtökunni harðlega. Mótmæli brutust út vegna handtöku kvennanna. Sameinuðu þjóðirnar segja að mótmælendunum hafi verið mætt af hörku og að minnsta kosti tveir voru drepnir og tuttugu særðust í mótmælunum.