Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo einstaklinga í miðborginni í gærkvöldi eða nótt vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hníf var beitt.Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku en gerendur voru vistaðir í fangaklefum. Frekari upplýsingar um málið koma ekki fram í skeyti lögreglu, svo sem um líðan þess sem fyrir árásinni varð.Þá var ráðist á einstakling fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Gerandi flúði af vettvangi og árásarþoli var fluttur á slysadeild.
Tveir handteknir eftir alvarlega líkamsárás þar sem hníf var beitt