Tveimur flugvöllum í austanverðu Póllandi, í Lublin og Rzeszów, hefur verið lokað vegna eldflaugaárása Rússlandshers á Úkraínu. Þeir eru báðir skammt frá landamærum ríkjanna. Í tilkynningu pólskra flugmálayfirvalda segir að flugherinn sé í viðbragðsstöðu og búi sig undir fyrirbyggjandi aðgerðir.
Tveimur flugvöllum í Póllandi lokað vegna árása Rússa á Úkraínu