Bæjarhátíðin „Tvær úr Tungunum“ hefur verið endurvakin og verður haldin laugardaginn næstkomandi, þann 15. ágúst, í Reykholti í Biskupstungum. Keppt verður í hefðbundnum greinum Hálandaleikanna, staurakasti, lóðakasti, sleggjukasti og 25 kg lóðakasti yfir rá. Einnig verður keppt í axlatökum, eða svokölluðu „Cumberland Wrestling“. Matarvagnar verða á staðnum. Boðið verður upp á krakkaþrautir og keppt verður í 5 km hlaupi og 2,5 km fjölskylduhlaupi.
Tvær úr Tungunum