Í morgun mátti heyra annað hljóð í írönskum ráðamönnum þegar Hormússundi var skyndilega lokað aftur. Var vísað til áframhaldandi hafnarbanns Bandaríkjahers á svæðinu sem Íran telur klárt brot á vopnahléssamkomulagi ríkjanna.
Bandaríkin segjast hafa komið í veg fyrir að 23 skip kæmust að Hormússundi eftir að herinn fór að framfylgja hafnarbanni sínu 13. apríl.
Bandaríkjaher hyggst á næstu dögum fara um borð í olíuflutningaskip tengd Íran og leggja hald á kaupskip á alþjóðlegu hafsvæði. Þetta fullyrðir Wall Street Journal og hefur eftir bandarískum embættismönnum.
Tveir íranskir bátar skutu á olíuflutningaskip á Hormússundi í dag og gámaskip varð einnig fyrir „óþekktum hlut,“ að sögn bresku sjóviðskiptastofnunarinnar (UKMTO).
Indversk stjórnvöld hafa lýst því yfir að skotið hafi verið á tvö skip sem sigli undir indversku flaggi.
Viðræður haldi áfram
Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi stöðuna við fjölmiðla vestanhafs í dag og sagði enn mögulegt að komast að samkomulagi við Íran.
„Þeir [Íranir] voru að vera svolítið krúttlegir, eins og þeir hafa gert í 47 ár,“ sagði Trump við fréttamenn um síðustu lokun Hormússunds.
„Við erum í viðræðum við þá. Þeir vildu loka sundinu aftur – þú veist, eins og þeir hafa gert í mörg ár – en þeir geta ekki kúgað okkur.“
„Þetta gengur í raun mjög vel og við sjáum til, en við munum hafa einhverjar upplýsingar í lok dags,“ bætti Trump við.
Um fimmtungur af olíuframleiðslu heimsins og fljótandi gasi er jafnan flutt í gegnum Hormússund sem er staðsett fyrir sunnan Íran en það hefur meira og minna verið lokað frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í febrúar. Hefur þetta haft mikil áhrif á alþjóðahagkerfið en einnig er stór hluti hráefna í áburðarframleiðslu fluttur um svæðið. Hafa hjálparstofnanir því varað við hættunni á fæðuskorti í þróunarríkjum.
Fréttin hefur verið uppfærð.