Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir að efnisatriði samkomulags við Íran sem voru birt í írönskum fjölmiðlum í morgun hafi ekkert að gera með þá skilmála sem búið er að samþykkja.
Íranski ríkisfjölmiðillinn birti í morgun það sem hann sagði að væru efnisatriði úr drögum að samkomulagi milli Írans og Bandaríkjanna sem nú lægju fyrir. Meðal þeirra efnisatriða voru að Íran opni Hormússund en haldi áfram stjórn á því, frystingu á um 24 milljarða dollara eignum Írans verði aflétt og 60 daga frestur verði gefinn til að semja um kjarnorkuáætlun Írana. Þeir mættu áfram auðga úran.
Þessu mótmælir forseti Bandaríkjanna í færslu á Truth Social. Þar segir:
Skilmálarnir sem Íran lak í falsfréttamiðla hafa EKKERT að gera með á skilmála sem hafa verið samþykktir, skriflega. Það sem þeir sögðu, þar á meðal veik og ömurleg yfirlýsing um að hafa náð samkomulagi, hefur enga stoð í raunveruleikanum. Mjög óheiðarlegt fólk til að semja við. Það er ekkert til sem heitir að semja í góðri trú þegar þeir eru annars vegar. ÓTRÚLEGT! Að auki er drónaárs þeirra á indversk skip sem voru að yfirgefa Hormús-sund, sem var algjörlega hrundið, ALGERLEGA ÓTÆK! Eins gott að þeir taki si saman í andlitinu, og það FLJÓTT!
Bandarískir fjölmiðlar hafa sagt að samningar gætu náðst fyrir leiðtogafund G7 ríkjanna sem hefst á mánudaginn.