Donald Trump Bandaríkjaforseti vill hitta norðurkóreska leiðtogann Kim Jon Un helst ekki síðar en í haust að því er segir í umfjöllun The Wall Street Journal. Blaðið segir forsetann vilja koma á samkomulagi um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu við Kim og að hann hætti algerlega við öll áform um að styrkja kjarnorkuvopnabúr landsins.
Þetta yrði fjórði fundur þeirra. Trump vísaði á sunnudag til einstaks vinasambands síns við Kim Jong Un þegar hann fyrirskipaði að dregið yrði úr umfangi sameiginlegrar heræfingar með Suður-Kóreu. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, hefur lagt ríka áherslu á að auka sjálfstæði hers landsins.
Yfirmenn herafla Suður-Kóreu ákváðu að stytta heræfinguna fyrir sitt leyti eftir að Trump ákvað að minnka umfang hennar. Æfingin hófst á sunnudaginn var og lýkur á föstudag, samkvæmt tilkynningu heraflans, en hún átti að standa fram í næstu viku.
Herir ríkjanna hafa haldið sameiginlegar heræfingar áratugum saman og átt náið samstarf á öðrum sviðum. Markmiðið hefur verið að auka fælingarmátt gegn Norður-Kóreu. Vopnahlé hefur verið í gildi milli ríkjanna á Kóreuskaga síðan 1953 og því er stríði þeirra ekki formlega lokið.
Trump hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir ákvörðun sína, sem þykir áróðurssigur fyrir Norður-Kóreu. Ríkið hefur lengi gert tilraunir með kjarnorkuvopn og þannig þótt ógna stöðugleika í heimshlutanum ásamt því að útvega Rússum hergögn og mannafla í innrásarstríðinu í Úkraínu.