Samkomulagið sem er í burðarliðnum „myndi fela í sér tafarlausa, fullkomna og algera OPNUN HORMÚSSUNDS og að endi verði bundinn á kjarnorkuógn Írans,“ skrifaði Donald Trump í samfélagsmiðlafærslu í gærkvöld.
„Byggt á þessari beiðni hef ég samþykkt, í þágu heimsbyggðarinnar og, sömuleiðis, afkomu farsæls og blómlegs Írans, að hætta við árásina, með fyrirvara um að hægt sé að ná SAMKOMULAGI fljótt,“ bætti Trump við.
Ísrael sagt tilbúið til að leggja sitt að mörkum
Ísrael hefur samþykkt að taka þátt í því með Bandaríkjunum að reyna að ná samningi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, að sögn Bandaríkjaforseta. Íran hefur ekki tjáð sig opinberlega um tilkynningu Trumps. AP-fréttaveitan greinir frá.
Yfirlýsing Trumps kemur degi eftir að hann gaf í skyn að Bandaríkin væru nálægt því að hefja þungar hernaðarárásir á ný til að þvinga stjórnvöld í Teheran að samningaborðinu.
Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran þann 28. febrúar og hófu stríð sem Trump sagði að miðaði að því að eyðileggja eldflaugagetu Teheran, koma í veg fyrir að landið kæmist yfir kjarnorkuvopn og binda enda á stuðning þess við vopnaða bandamenn í öðrum ríkjum.
Yfirlýst markmið og tímalínur átakanna hafa ítrekað tekið breytingum og samkomulag sem náðist um miðjan júní um að stöðva átökin rann út í sandinn innan nokkurra vikna.
Sádar áhyggjufullir
AP greinir frá því að Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu og eiginlegur leiðtogi konungsríkisins, hafi rætt við Trump í síma í gær og lýst yfir áhyggjum af því að Bandaríkin gætu magnað upp átökin við Íran. Símtalið átti sér stað áður en Trump birti áðurnefnda yfirlýsingu sína.
Sádi-Arabar hafa áhyggjur af því að stjórnvöld í Íran gætu brugðist við með árásum á orkuinnviði þeirra og annarra Persaflóaríkja, að sögn ónefnds heimildarmanns.
Krónprinsinn er sagður hafa óskað eftir upplýsingum um það hvaða aðgerðir Trump væri að íhuga gegn Íran.
Íran hefur ítrekað ráðist á skip sem reyna að fara um Hormússund án leyfis þeirra eftir að átökin hófust við Bandaríkin. Hefur þetta meðal annars haft mikil áhrif á olíuútflutning nágrannaríkisins Sádi-Arabíu.